Handbolti

Bjarni var kominn á lista hjá Icelandair: „Rotaðir frá fyrstu mínútu“

Sindri Sverrisson skrifar
Menn voru misglaðir í höllinni í Zagreb í gærkvöld. Uppselt var á leikinn og fögnuðu Króatar vel á meðan að íslenskir stuðningsmenn urðu fyrir miklum vonbrigðum.
Menn voru misglaðir í höllinni í Zagreb í gærkvöld. Uppselt var á leikinn og fögnuðu Króatar vel á meðan að íslenskir stuðningsmenn urðu fyrir miklum vonbrigðum. VÍSIR/VILHELM

Stemningin og meðbyrinn sem var með íslenska landsliðinu á HM í handbolta hvarf snarlega með tapinu gegn Króatíu í gærkvöld. Fólk sem ætlaði að fljúga til Zagreb á 8-liða og jafnvel undanúrslitaleik hjá Íslandi heldur núna í veika von.

Bjarni Fritzson er þeirra á meðal eins og fram kom í nýjasta hlaðvarpsþætti Besta sætisins sem finna má á Vísi og á helstu hlaðvarpsveitum.

Ísland steinlá gegn Króatíu og þarf nú að vinna Argentínu á morgun og treysta á hjálp frá Grænhöfðaeyjum eða Slóveníu, til að komast í 8-liða úrslitin, þrátt fyrir aðeins eitt tap á mótinu.

„Við vorum algjörlega slegnir niður. Bara búmm. Ég var búinn að bóka mig á Icelandair-póstlistann fyrir 8-liða úrslita flugið. Það flug verður ekki bókað alveg strax,“ sagði Bjarni og bætti við:

„Svona var stemningin hjá mér. Við vorum bara rotaðir frá fyrstu mínútu. Þetta er hrikalega súrt.“

Ásgeir Örn Hallgrímsson segir að fyrsta korter leiksins hafi ráðið úrslitum. Króatar hafi fengið meðbyr og þá sé afskaplega erfitt að eiga við þá:

„Liðið náði augljóslega ekki að sýna neitt af því sem það hafði sýnt í síðustu tveimur leikjum. Ef við horfum til baka núna þá er það þetta fyrsta korter sem verður okkur að falli. Þeir mæta ógeðslega peppaðir, stemning og full höll, og það gekk allt upp.

Við sáum skot af tólf metrum, þeir stálu sendingum, þeirra markvörður var að verja, og svo var staðan bara orðin 11-5. Ef það er eitthvað vont þá er það að fá Króata í meðbyr í fangið. Við lentum í því og náðum aldrei að jafna okkur. Það var of margt sem að hrundi á sama tíma. Engin vörn, engin markvarsla, og svona fimm tæknifeilar á fyrsta korterinu,“ sagði Ásgeir.

Hlusta má á Besta sætið í spilaranum hér fyrir ofan og hér fyrir neðan. Þáttinn má eins og fyrr segir finna á öllum helstu hlaðvarpsveitum.


Tengdar fréttir

Sjáðu markið sem hefði bjargað Íslandi á HM

Eins og vonbrigðin yfir tapi Íslands gegn Króatíu í gærkvöld séu ekki nógu mikil þá nístir sjálfsagt inn að beini að jöfnunarmark Slóvena gegn Egyptum, sem hefði svo gott sem komið Íslandi inn í 8-liða úrslitin, skyldi ekki fá að standa í gær.

Myndasyrpa frá svekkelsinu í Zagreb

Ísland tapaði fyrir heimaliði Króatíu, 32-26, í öðrum leik sínum í milliriðli 4 á heimsmeistaramótinu í handbolta karla í gær. Fyrir vikið eru möguleikar Íslendinga á að komast í átta liða úrslit orðnir ansi litlir.

Ein­kunnir Strákanna okkar á móti Króatíu: Hér varð hrun

Eftir að hafa unnið fyrstu fjóra leiki sína á HM á íslenska karlalandsliðið í handbolta allt í einu litla möguleika á að komast í átta liða úrslit eftir stórt tap fyrir Króatíu, 32-26, í Arena Zagreb í kvöld.

„Gerðum nákvæmlega það sem við ætluðum ekki að gera“

„Við vorum með allt klárt og gerðum nákvæmlega það sem við ætluðum ekki að gera,“ sagði Aron Pálmarsson, landsliðsfyrirliði í handbolta, hundóánægður eftir skelfilega útreið gegn Króatíu á HM í Zagreb í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×