Kristján mun starfa í sænsku sjónvarpi í kringum mótið sem fram undan er en hann tjáði sig um möguleika íslenska liðsins í Handkastinu, sem er í umsjón Arnars Daða Arnarssonar.
Kristján segir ljóst að Ísland verði í baráttu við Slóveníu, Egyptaland og Króatíu um efstu tvö sæti milliriðilsins í næstu viku. Ísland hefur leik gegn Grænhöfðaeyjum í dag, mætir Kúbu á laugardag og Slóveníu í lokaleik riðlakeppninnar á mánudag. Egyptar og Króatar munu svo mæta Íslandi í milliriðli sem hefst á miðvikudag í næstu viku.
Slóvenar mæta Kúbu áður en leikur Íslands fer fram í Zagreb í dag en Slóvenar hafa gert vel á síðustu stórmótum. Þeir eru hins vegar án tveggja reynslubolta sem hafa borið leik liðsins uppi síðustu ár. Þeir 35 ára gömlu Jure Dolenec, sem leikur í hægri skyttu, og miðjumaðurinn Dean Bombac eru ekki með. Sama er að segja um línumanninn Matej Gaber.
„Það eru mjög miklir möguleikar. Slóvenar lentu í fjórða sæti á Ólympíuleikunum en eru náttúrulega búnir að missa Dolenec, Bombac og Gaber en á sama tíma er maður að bíða eftir að Makuc [Domen Makuc, leikmaður Barcelona] springi út og sýni sína hæfileika,“ segir Kristján.
„Egyptar, stóri bróðir El-Deraa [Yehia El-Deraa, leikmaður Veszprem, eldri bróðir Seif El-Deraa] er ekki með. Það er rosalega þýðingarmikið fyrir þá því hann er Elvar Örn Jónsson fyrir Egypta og getur spilað bæði vörn og sókn og gerir það vel,“ segir Kristján en El-Deraa bræður eru veigamiklir í leik Egypta.
„Króatar eru á heimavelli. Ég hef reynslu af því þegar við 2018 unnum þá í Split með Svíum, þá var erfitt fyrir þá þegar við náðum yfirhöndinni. Þá skapaðist mikið stress og pressa frá áhorfendum. Þeir geta haft rosalega mikil áhrif,“ segir Kristján um Króata sem leika undir stjórn Dags Sigurðssonar. Stemningin var góð er Króatar unnu Katara í fyrsta leik í Zagreb í gær en það geti snúist ef illa gengur.
Tapi fyrir Dönum í undanúrslitum
Kristján telur að Ísland hafi betur gegn þessum liðum sem talin eru upp að ofan og fari einnig í gegnum 8-liða úrslitin. Þar verði Danir of stór biti til að kyngja.
„Mér finnst vera rosalega fínir möguleikar en á sama tíma þarf Ísland að spila góðan bolta. Markvarsla og vörn þarf að virka alla þrjá leiki gegn Slóvenum, Egyptum og Króötum,“
„Ég held að Ísland fari í undanúrslit og mæti Danmörku. Ég held að það verði of erfitt og liðið spili medalíuleik við Norðmenn um þriðja sætið. Það er mín spá,“ segir Kristján.
Þátt Handkastsins má nálgast að neðan.
Leikur Íslands og Grænhöfðaeyja er klukkan 19:30 í kvöld. Strákunum okkar verður fylgt vel á eftir á Vísi, Stöð 2 og Bylgjunni fram að leik.