Ísland mætir Grænhöfðaeyjum í fyrsta leik mótsins á morgun. Undirbúningur hefur staðið yfir frá því í lok desember og gengið vel, að sögn Þorsteins.
„Æfingarnar hafa gengið vel, þetta er fínasta hótel og allt í lagi matur. Bara svona venjulegt,“ segir Þorsteinn. Maturinn er sem sagt ekki betri en allt í lagi?
„Það er oftast aðeins verri matur hérna megin. Þurr matur og svona. Þetta mætti vera aðeins betra en þetta er allt í lagi. Ég kvarta ekki,“ segir Þorsteinn sem er þá spurður hvað hann sé mest að grípa til í mötuneytinu.
„Er þetta ekki bara kjúklingurinn og hrísgrjónin, er það ekki basic? Maður er alltaf í því en verður orðinn þreyttur á því fljótlega,“ segir Þorsteinn Leó.
Ekki fundið pressuna, ennþá
Þorsteinn segir íslenska liðið þá njóta góðs af því að hafa spilað tvo æfingaleiki við sterkt lið Svía í aðdraganda móts. Þorsteinn tók þátt í síðari leiknum og segir lærdóm dreginn af þessu verkefni.
„Það gekk ágætlega og margt sem við getum lært af þeim leikjum. Það verður mjög gott fyrir okkur að hafa byrjað á þeim tveimur leikjum,“ segir Þorsteinn en munum við sjá hann fá stórt hlutverk í leik morgundagsins?
„Það verður held ég bara að koma í ljós. Ég vona að ég fái að spila en það verður bara að koma í ljós,“ segir Þorsteinn.

Hverjar eru væntingarnar fyrir komandi mót?
„Við ætlum auðvitað bara að gera okkar besta til að vinna hvern leik og byrjum á Grænhöfðaeyjum á morgun og reynum að fljúga áfram,“ segir Þorsteinn, en finnur hann fyrir pressu, verandi kominn með landsliðinu á stórmót?
„Ég hef ekki fundið hana ennþá. Ekki hjá mér allavega, ég finn enga utanaðkomandi pressu. En er ekki alltaf pressa að vera á stórmóti?“ segir Þorsteinn.
Ætlar að vinna sér inn stöðu í liðinu
Líkt og segir að ofan eru Grænhöfðaeyjar fyrsti andstæðingur strákanna. Þorsteinn segir um óagað lið að ræða.
„Þeir eru mjög óagaðir, bæði í vörn og sókn. Þeir skjóta mjög mikið fyrir utan, mjög óöguð skot, varnarleikurinn er líka óagaður og hjálpa mikið. Ef við erum hundrað prósent eigum við ekki að eiga í vandræðum með þá en ef við gerum það ekki gæti þetta verið vesen,“ segir Þorsteinn. Hvernig nálgast hann sjálfur sitt fyrsta stórmót?
„Hugarfarið hjá mér er bara einfalt. Ég ætla að auðvitað bara að spila eins vel og ég get og sýna hvað ég get. Ég kem hungraður inn í þetta og ætla að vinna mér inn stöðu hérna, það er hugarfarið mitt.“
Fleira kemur fram í viðtalinu sem má sjá í spilaranum.
Leikur Íslands og Grænhöfðaeyja er klukkan 19:30 í kvöld. Strákunum okkar verður fylgt vel á eftir á Vísi, Stöð 2 og Bylgjunni fram að og eftir leik.