Viðskipti innlent

Bein út­sending: Skattadagurinn 2025

Árni Sæberg skrifar
Skattadagurinn verður haldinn í Hörpu.
Skattadagurinn verður haldinn í Hörpu. Vísir/Vilhelm

Skattadagur Deloitte, Viðskiptaráðs og Samtaka atvinnulífsins fer fram í dag, þriðjudaginn 14. janúar, klukkan 8:30 til 10:00 í Silfurbergi, Hörpu. Sýnt verður beint frá fundinum hér á Vísi.

Í tilkynningu á vef Deloitte segir að Skattadagurinn hafi verið haldinn árlega frá árinu 2004. Mjög góð þátttaka hafi verið á viðburðinum og ljóst sé að Skattadagurinn hafi fest sig í sessi hjá einstaklingum og fyrirtækjum, sem vilja hlýða á það nýjasta sem er að gerast í skattamálum hverju sinni.

Dagskrá Skattadagsins er eftirfarandi:

Opnunarávarp

Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra.

Skattalagabreytingar og skattframkvæmd - hvað er að frétta? 

Haraldur Ingi Birgisson, meðeigandi og lögmaður hjá Deloitte Legal.

Aðgát skal höfð í nærveru fjármagns

María Guðjónsdóttir, lögfræðingur Viðskiptaráðs.

Verðmætasköpun með hugvitið að vopni 

Ingvar Hjálmarsson, framkvæmdastjóri Nox Medical.

Innslög frá nýsköpunarfyrirtækjum um skattaumhverfið 

Örmyndbönd.

Fundarstjórn

Heiðrún Björk Gísladóttir, lögmaður á málefnasviði Samtaka atvinnulífsins.

Skattadaginn má sjá í beinni útsendingu í spilaranum hér að neðan:






Fleiri fréttir

Sjá meira


×