Slot hrósaði Accrington og ungstirninu Smári Jökull Jónsson skrifar 11. janúar 2025 21:31 Rio Ngumoha fékk fimmu frá Arne Slot um leið og hann gekk af velli í dag. Vísir/Getty Liverpool vann þægilegan 4-0 sigur á Accrington í enska bikarnum í knattspyrnu í dag. Knattspyrnustjórinn Arne Slot hrósaði Trent Alexander-Arnold fyrir frammistöðu sína en bakvörðurinn átti erfitt uppdráttar í leik gegn Manchester United um síðustu helgi.
Sigur Liverpool gegn Accrington var öruggur eins og flestir bjuggust við fyrir leik. Arne Slot hvíldi Mohamed Salah en stillti upp nokkrum af stjörnum liðsins auk þess sem hinn 16 ára gamli Rio Ngumoha fékk tækifæri í byrjunarliðinu. Knattspyrnustjórinn Arne Slot hrósaði andstæðingunum eftir leikinn en lið Accrington leikur í fjórðu efstu deild á Englandi. „Hrós til Accrtington, þeir sýndu hvernig þeir vilja spila sem er vel gert. Þeir voru ekki hræddir og spiluðu sinn vanalega leik þar sem þeir pressa hátt og voru ekki hræddir að fara einn gegn einum. Stórt hrós til þeirra og að lokum var munurinn á gæðum það sem gerði gæfumuninn“ „Stuðningsmennirnir gátu séð af hverju okkur finnst hann svona hæfileikaríkur“ Hinn 16 ára gamli Rio Ngumoha kom til Liverpool frá Chelsea í sumar og varð yngsti leikmaður Liverpool í FA-bikarnum frá upphafi og yngsti leikmaðurinn í sögu félagsins til að byrja leik. „Ngumoha gerði vel. Það voru nokkur augnablik þar sem stuðningsmennirnir gátu séð af hverju okkur finnst hann svona hæfileikaríkur. Hann gerði vel í aðstæðum einn á móti einum og getur breytt um stefnu mjög hratt.“ „Við sáum aðeins meira í fyrri hálfleiknum en þeim síðari. Það var gaman fyrir hann að spila fyrsta leikinn og ná sigri. Hann átti nokkur góð augnablik þar sem stuðningsmennirnir fögnuðu. Góður og sérstakur dagur fyrir hann.“
Mest lesið Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Enski boltinn Aftur var Arsenal-maðurinn Merino hetja Spánverja Fótbolti Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Enski boltinn Fyrrverandi landsliðsmaður drukknaði Fótbolti Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Enski boltinn Er hik í vítaspyrnum að láta leikmenn klúðra þeim? Fótbolti Tímabilinu lokið hjá Elíasi sem sótti að markametinu Íslenski boltinn Árni Vilhjálms í Stjörnuna Íslenski boltinn María að gera Þóri að afa Fótbolti Evrópu-Emil: Æðislegt að setja þrjú mörk í Evrópu Fótbolti Fleiri fréttir Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Sjá meira