Sport

Gæti mætt mömmu sinni á EM

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Anna Cramling Bellón einbeitt við skákborðið. Hún ætlar að keppa á EM en móðir hennar hefur tvisvar orðið Evrrópumeistari.
Anna Cramling Bellón einbeitt við skákborðið. Hún ætlar að keppa á EM en móðir hennar hefur tvisvar orðið Evrrópumeistari. Getty/Miguel Pereira

Það gæti verið boðið upp á mjög athyglisverða viðureign á næsta Evrópumóti kvenna í skák.

Anna Cramling er bæði skákstjarna og áhrifavaldur á samfélagsmiðlum. Skákkonan er mjög vinsæl á samfélagsmiðlunum Twitch og YouTuber.

Hún er líka sjálf öflug við skákborðið og mun taka þátt í Evrópumótinu í skák á þessu ári.

@Sportbladet

Cramling kemur úr mikilli skákfjölskyldu því móðir hennar er sænski stórmeistarinn Pia Cramling og faðir hennar er spænski stórmeistarinn Juan Manuel Bellón López.

Anna hóf að tefla þegar hún var þriggja ára en flutti frá Spáni til Svíþjóðar fyrir áratug síðan. Hún sýndi smá mótþróa í fyrstu og skákin var ekki ofarlega á vinsældarlistanum á unglingsárunum. Seinna breytti hún um skoðun og nú á skák hug hennar allan.

Hún er nú 22 ára gömul og fór fyrst að vekja athygli við skákborðið árið 2018.

Anna sló líka í gegn á samfélagsmiðlum í Kórónufaraldrinum þegar hún setti í gang Youtube síðu þar sem hún fjallar um skák. Hún fær oft foreldra sina í heimsókn í þáttinn sinn.

Næst á dagskrá er Evrópumótið í skák og þar gæti farið svo að Anna mæti móður sinni við skákborðið.

Aftonbladet fjallar um þá staðreynd að mæðgurnar gætu mæst. Móðir hennar Pia hefur verið stórmeistari frá árinu 1992 en Anna er fædd tíu árum síðar.

Pia Cramling hefur sjálf orðið tvisvar Evrópumeistari í skák eða 2003 og 2010. Hún vann fyrra EM-gullið sitt þegar dóttir hennar var bara eins árs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×