Erlent

Belgar varaðir við því að borða jóla­trén

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Jólatrén eiga að fara í moltu, ekki á matarborðið.
Jólatrén eiga að fara í moltu, ekki á matarborðið. Getty/Christian Charisius

Matvælastofnun Belgíu hefur varað fólk við því að leggja sér jólatré til munns, eftir að borgaryfirvöld í borginni Ghent lagði til við fólk að prófa.

Á vefsíðu borgarinnar var bent á að það tíðkaðist í Skandinavíu að „endurnýta“ jólatré með þessum hætti og þar mátti meðal annars finna ráðleggingar um hvernig meðhöndla mætti barrnálar til að bragðbæta smjör.

„Jólatré eiga ekki erindi í fæðukeðjuna,“ voru hins vegar viðbrögð matvælastofnunarinnar, AFSCA.

„Það er engin leið til að tryggja að neysla jólatrjáa sé örugg, hvorki fyrir fólk né dýr,“ sagði í yfirlýsingu frá stofnuninni. Var meðal annars vísað til þess að skordýraeitur væru notuð við ræktun trjánna og þá væri engin leið fyrir neytendur til að vita hvort trén hefðu verið meðhöndluð með eitruðum eldvarnarefnum.

„Í stuttu máli þá eru margar ástæður fyrir því að hvorki auglýsa né hvetja til endurnýtingar jólatrjáa í fæðukeðjunni,“ sagði í yfirlýsingunni.

Vefsíðu Ghent var breytt í kjölfarið og í stað þess að hvetja fólk til að prófa jólatré við matarborðið er þar nú aðeins að finna pistil um hefðina í Skandinavíu, auk viðvörunar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×