Innlent

Heitir því að verða betri eigin­maður og finna sér nýja vinnu

Magnús Jochum Pálsson og Bjarki Sigurðsson skrifa
Matheus hefur strengt sér þau áramótaheit að verða betri eiginmaður og vonandi finna sér nýja og betri vinnu. Árið fer vel af stað að hans mati.
Matheus hefur strengt sér þau áramótaheit að verða betri eiginmaður og vonandi finna sér nýja og betri vinnu. Árið fer vel af stað að hans mati. Vísir/Stöð 2

Á ári hverju strengir drjúgur hluti landsmanna áramótaheit. En hver eru vinsælustu áramótaheitin í ár og hvernig gengur fólki að standa við þau?

Áramótaheit eru oft með svipuðum hætti: „ég ætla að borða hollari mat, ég ætla að mæta oftar í ræktina, ég ætla að eyða minni pening...“

Stundum gengur fólki vel og það nær markmiðum sínum en fólk gefst líka oft upp, gjarnan í kringum 5. janúar eða svo. Fréttastofa ræddi við gangandi vegfarendur um áramótaheit þeirra og hvernig gengi að halda heitin.

„Verða betri í golfi, til dæmis,“ segir Svava um áramótaheit sitt.

Svava ætlar að borða minna nammi og verða betri golfari.Vísir/Stöð 2

Hvernig hefur það gengið?

„Ég er búin að panta kennslu. Ég fékk það líka í jólagjöf,“ segir hún og bætir síðan við: „Svo er það líka að minnka nammið. Ég er að fara að kaupa súkkulaði... nei.“

Josep nokkur var ekki með jafnáþreifanleg markmið og Svava, sagðist lítið hafa pælt í áramótaheitum. 

Eftir stutta umhugsun sagði hann: „Gera allt betra.“

Markmiðið að halda striki

Tveir ungir menn sem fréttamaður rakst á voru markvissari. 

„Bara að græða meiri pening,“ sagði Anthony um sín heit.

Ertu með einhver markmið hvernig þú ætlar að gera það?

„Spara meira, eyða minni pening í áfengi og djamm og allt það dæmi,“ sagði hann þá.

„Halda strikinu sínu, halda áfram í ræktinni og þannig. Maður er búinn að standa sig fínt eins og er. Bara halda því áfram,“ sagði Addi.

Fyrir Adda er nóg að halda sínu striki og það hefur gengið nokkuð vel.Vísir/Stöð 2

Önnur vill borða hollara, hinn vill verða betri maður

Sólveig Bríet og Matheus voru með ólík áramótaheit.

„Borða hollara og vera dugleg í skólanum. En ég er aldrei með neitt sérstakt, sko,“ sagði Sólveig.

„Að verða betri eiginmaður og skipta kannski um vinnu ef ég get. Fyrir betri vinnu,“ sagði Matheus hins vegar.

Hefurðu náð árangri á fyrstu dögunum?

„Já, vonandi. En þú ættir að spyrja konuna mína. Hún er ekki með mér núna. Kannski er hún annarrar skoðunar. Kannski er ég of bjartsýnn,“ sagði hann hlæjandi að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×