Handbolti

Mis­jafnt gengi Íslendingaliðanna í Þýska­landi

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Sandra í leik með Metzingen á síðasta tímabili
Sandra í leik með Metzingen á síðasta tímabili

Íslendingaliðin Metzingen og Blomberg-Lippe áttu misjöfnu gengi að fagna í þýsku deildinni í handbolta í dag.

Sandra Erlingsdóttir og stöllur hennar í Metzingen unnu sterkan fimm marka sigur gegn Neckarsulmer, 30-25, þar sem Sandra skoraði eitt og lagði upp annað fyrir heimakonur.

Með sigrinum stökk Metzingen upp um þrjú sæti í þýsku deildinni og situr nú í áttunda sæti með sjö stig eftir tíu leiki.

Þá máttu þær Andra Jacobsen og Díana Dögg Magnúsdóttir þola átta marka tap með liði sínu Blomberg-Lippe gegn Ludwigsburg, 32-24. 

Andrea skoraði þtjú mörk fyrir gestina, en Díana komst ekki á blað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×