Innlent

Á vaktinni við lokunar­pósta alla jóla­nótt

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Vegirnir um Hellisheiði og Þrengsli eru báðir lokaðir.
Vegirnir um Hellisheiði og Þrengsli eru báðir lokaðir. Vísir/Vilhelm

Björgunarsveitir höfðu í nógu að snúast á aðfangadagskvöld og jólanótt, en slæm færð og vonskuveður hefur víða einkennt upphaf jólahátíðarinnar. Lokunarpóstar eru við Hellisheiði, og veðurviðvaranir í gildi inn í morgundaginn. 

Á tíunda tímanum í gærkvöldi voru björgunarsveitir kallaðar út til aðstoðar fólki á Hellisheiði. Upplýsingafulltrúi Landsbjargar segir veðurspár fyrir gærdaginn hafa gengið eftir að meginstefnu til.

„Það var þæfingsfærð á Hellisheiðinni, sem var svo orðin lokuð. Einhverjir höfðu nú reynt við hana engu að síður. Björgunarsveitir á Suðurlandi, úr Hveragerði, Selfossi og Þorlákshöfn fóru í það verkefni að sinna því, og leystu það. Þetta var svona aðeins fram í jólanóttina,“ segir Jón Þór Víglundsson hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörg.

Misvísandi skilti

Einhverjir vegfarendur hafi fengið misvísandi upplýsingar á skiltum, og því reynt að fara yfir lokaða heiðina.

„Hvort hún væri opin eða lokuð. Þannig að við ætlum ekki að álasa neinum fyrir að reyna.“

Björgunarsveitir hafi einnig þurft að bregðast við útköllum á norðvestanverðu landinu.

„Þar lenti fólk í vandræðum á Bröttubrekku og björgunarsveitin Heiðar í Borgarfirði fór á brekkuna og aðstoðaði þau. Síðan var það í Reykhólasveit, inni á Kletthálsi sem fólk lenti í vandræðum. Björgunarsveitin heimamenn á Reykhólum sinnti því verkefni.“

Fólk fylgist vel með

Gular og appelsínugular viðvaranir eru í gildi á vestan- og sunnanverðu landinu, og því ekki loku fyrir það skotið að björgunarsveitir verði kallaðar út í dag.

„Það verður bara að koma í ljós, en við höfum svo sem setið við sitthvorumegin Hellisheiðarinnar með lokunarpósta, þannig að fólk er ekki að fara þangað. Þar hefur fólk verið á vakt í alla nótt og verður eitthvað fram eftir degi, á meðan veðrið er eins og það er.“ segir Jón Þór. 

Hann beinir því til fólks að fylgjast vel með veðurspám á vef Veðurstofunnar, Veður.is, og færð á vegum á Umferðin.is. Þar má sjá að auk Hellisheiðar er vegurinn um Öxnadalsheiði nú lokaður, sem og Holtavörðuheiði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×