Enski boltinn

Al­gjört á­fall fyrir Arsenal og Saka

Sindri Sverrisson skrifar
Bukayo Saka er ákaflega vonsvikinn eftir að hafa meiðst um helgina.
Bukayo Saka er ákaflega vonsvikinn eftir að hafa meiðst um helgina. Getty/David Price

Bukayo Saka, einn besti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta, verður ekki með Arsenal á næstunni vegna meiðsla.

Saka yfirgaf Selhurst Park á hækjum á laugardaginn, eftir 5-1 sigurinn gegn Crystal Palace. Mikel Arteta, stjóri Arsenal, greindi svo frá því í dag að Arteta yrði frá keppni í umtalsverðan tíma.

„Þetta lítur ekki vel út. Hann verður frá keppni í margar vikur,“ sagði Arteta en gaf ekki nákvæmari tímaramma. Saka meiddist aftan í læri og miðað við svör Arteta má ætla að um sé að ræða alvarlega tognun eða rifu í vöðva.

„Svona er þetta bara. Hann er meiddur og við getum ekki breytt því. Núna nýtum við tímann til að styðja við hann,“ sagði Arteta.

Þetta er annað stóra áfallið sem Arsenal verður fyrir á leiktíðinni eftir að fyrirliðinn Martin Ödegaard meiddist í haust og var frá keppni í tvo mánuði. Fjarvera hans hafði mikil áhrif á Arsenal-liðið en það hefur nú unnið sjö af síðustu tíu leikjum sínum, og gert þrjú jafntefli.

Arsenal situr í 3. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 33 stig, sex stigum á eftir toppliði Liverpool sem reyndar á leik til góða.

Kennir uppsöfnuðum leikjafjölda um

Arteta kveðst vera að setja saman hugmyndir um hvernig tekist verði á við fjarveru Saka og benti á að liðið hefði reynslu af því að missa út lykilmenn. Hann sagði Saka sjálfan vera í öngum í sínum.

Aðspurður hvort hann teldi að þétt leikjadagskrá hefði haft sitt að segja um meiðsli Saka svaraði Arteta:

„Það er örugglega frekar uppsafnaður fjöldi því menn eins og Declan [Rice] og Bukayo hafa spilað yfir 130 leiki á þremur leiktíðum,“ sagði Arteta.

Hann sagði Raheem Sterling einnig verða frá keppni á næstunni vegna hnémeiðsla.

Arsenal mætir næst Ipswich á heimavelli á föstudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×