Handbolti

Þyrfti krafta­verk til að Ómar yrði með á HM

Sindri Sverrisson skrifar
Ómar Ingi Magnússon og Óðinn Þór Ríkharðsson glaðbeittir í landsleik. Óðinn er á leiðinni á HM en Ómar missir nær örugglega af öllu mótinu vegna meiðsla.
Ómar Ingi Magnússon og Óðinn Þór Ríkharðsson glaðbeittir í landsleik. Óðinn er á leiðinni á HM en Ómar missir nær örugglega af öllu mótinu vegna meiðsla. vísir/Anton

Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari í handbolta, segir það í raun fínt að Ómar Ingi Magnússon sé ekki „spurningamerki“ fyrir heimsmeistaramótið í næsta mánuði. Meiðsli hans séu þannig að Snorri þurfti strax að finna leiðir til að spila án Ómars.

Ómar sleit þrjú liðbönd í hægri ökkla í leik með Magdeburg um síðustu mánaðamót og var þá sagður í versta falli þurfa að vera frá keppni í þrjá mánuði. Snorri valdi því annan Selfyssing, Teit Örn Einarsson, með Viggó Kristjánssyni í stöðu hægri skyttu.

„Ómar verður ekki leikfær nema eitthvað kraftaverk gerist. Að því sögðu er fínt fyrir mann sem þjálfara að þetta sé ekki spurningamerki,“ sagði Snorri á blaðamannafundi í dag þegar hann tilkynnti HM-hópinn.

„Það segir sig sjálft að þegar lykilmaður dettur út þá þarf maður að velta hlutum fyrir sér. Þetta er kannski ekki hausverkur en það fór smátími í að velta fyrir okkur hvaða leið við vildum fara þegar Ómar datt út. Á endanum varð Teitur fyrir valinu,“ sagði Snorri.

Línumaðurinn Elliði Snær Viðarsson hefur einnig verið frá keppni vegna meiðsla en er í HM-hópnum og vonast Snorri til að hann nái að spila næstu leiki með Gummersbach, undir stjórn Guðjóns Vals Sigurðssonar, áður en landsliðið kemur saman til æfinga 2. janúar.

„Elliði er búinn að vera spurningamerki og er nýbyrjaður að spila aftur. Ég hef verið í góðu sambandi við hann og Guðjón Val. Hann er í frábæru líkamlegu formi en auðvitað er betra að menn séu búnir að vera að spila leiki. Hann er samt það mikilvægur og í stóru hlutverki hjá okkur að það er mikilvægt að hafa hann í hópnum. Það kann vel að vera að það taki hann smátíma að komast í sitt besta form, en hann gæti náð 2-3 leikjum í Þýskalandi áður en hann kemur til móts við liðið,“ sagði Snorri.

Ísland á svo vináttulandsleiki ytra við Svía 9. og 11. janúar áður en liðið byrjar HM á að mæta Grænhöfðaeyjum 16. janúar í Zagreb.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×