Tvö ráðin til Klaks Árni Sæberg skrifar 17. desember 2024 13:08 Atli og Jóhanna Soffía eru nýjustu starfsmenn Klaks. Klak Klak - Icelandic Startups hefur ráðið til sín tvo nýja starfsmenn sem munu styrkja teymið og efla stuðninginn við frumkvöðla og sprotafyrirtæki á Íslandi. Jóhanna Soffía Sigurðardóttir og Atli Björgvins koma með breiðan bakgrunn og fjölbreytta reynslu sem mun gagnast í áframhaldandi uppbyggingu Klaks.
Í fréttatilkynningu segir að Jóhanna Soffía sé með mikla reynslu í fjármálum og verkefnastjórnun og hafi unnið við stefnumótun, þróun og tengslamyndun innan fyrirtækja og stofnana. Hún hafi einnig reynslu af ráðgjöf og kennslu, auk þess að hafa gegnt lykilhlutverki í ýmsum þróunarverkefnum á íslenskum vinnumarkaði. Atli Björgvins hafi áralanga reynslu af markaðs- og frumkvöðlastarfi, auk þess að hafa sinnt kennslu í nýsköpun og markaðsfræðum við Háskólann í Reykjavík og Háskólann á Bifröst. Hann hafi komið að fjölbreyttum verkefnum innan sprotafyrirtækja og unnið sem ráðgjafi í markaðssetningu fyrir bæði innlend og alþjóðleg fyrirtæki. Með Jóhönnu og Atla um borð muni Klak styrkja stöðu sína og veita betri stuðning til þeirra sprota sem það þjónar. „Það er mikill fengur að fá Jóhönnu og Atla í teymið okkar. Þau koma bæði með einstaka þekkingu, reynslu og sýn sem mun styðja við markmið okkar um að skapa öflugt stuðningsumhverfi fyrir nýsköpun og sprotafyrirtæki,“ er haft eftir Ástu Sóllilju Guðmundsdóttur, framkvæmdastjóra Klak.
Nýsköpun Vistaskipti Mest lesið Verðbólga mjakast niður á við Viðskipti innlent Ráðin fræðslustjóri Samkaupa Viðskipti innlent Icelandair hefur flug til Miami Viðskipti innlent Spá 50 punkta lækkun stýrivaxta Viðskipti innlent „Að fyrirtæki líti inn á við áður en kolefnisjöfnun er keypt“ Atvinnulíf Um fimmtíu verið sektuð fyrir að greiða ekki rétt fargjald Neytendur Átján tilnefningar til UT-verðlauna Skýs Viðskipti innlent Fólk muni eiga meira eftir í buddunni um mánaðamótin Neytendur Rannveig kjörin heiðursfélagi Viðskipti innlent Bein útsending: Fjármálaþjónusta framtíðarinnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Spá 50 punkta lækkun stýrivaxta Átján tilnefningar til UT-verðlauna Skýs Bein útsending: Fjármálaþjónusta framtíðarinnar Rannveig kjörin heiðursfélagi Icelandair hefur flug til Miami Verðbólga mjakast niður á við Ráðin fræðslustjóri Samkaupa Láta af óheimilli ríkisaðstoð við Sorpu Markaðurinn væntir vaxtalækkana Spá þriggja prósenta verðbólgu á næsta ári Breytingar hjá Arctic Adventures með nýju skipuriti Kolefnisförgunarstöð metin með hagsmuni íbúa að leiðarljósi Hæstiréttur tekur deilur Vinnslustöðvarinnar og ríkisins fyrir Nýir forstöðumenn hjá Motus Landsbankinn sé „svo sannarlega“ enn banki allra landsmanna Hallur Flosa rekstrarstjóri prentlausna hjá OK Telur furðulegt að „banki allra landsmanna“ veiti ekki íbúðalán í dreifbýli Berglind Una ný forstöðukona Digital Labs hjá Origo Loðnubrestur hefur gríðarleg áhrif á samfélagið Loðnumælingar gefa ekki ástæðu til bjartsýni Þrír nýir eigendur bætast í hópinn Vatnsbúskapurinn fer batnandi Hildur nýr mannauðsstjóri Distica Einkaþotufyrirtæki með skrautlega sögu svipt starfsleyfi vegna öryggismála Norska sjóbjörgunarsveitin semur við íslenskt fyrirtæki Boða til fundar með íbúum Ölfuss um kolefnisförgunarstöð Ari nýr tæknistjóri Fimmti hver leigjandi vildi heldur búa annars staðar Nýtt 68 herbergja hótel byggt á Hvolsvelli Taka jákvætt í kolefnisförgunarstöð í Ölfusi Sjá meira