Innlent

Reiknar með að hefja aftur störf á föstu­dag

Árni Sæberg skrifar
Helgi Magnús er vararíkissaksóknari.
Helgi Magnús er vararíkissaksóknari. Vísir/Einar

Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari gerir ráð fyrir því að mæta aftur til starfa á föstudag. Hann hefur ekki mætt til vinnu síðan í lok júní þegar ríkissaksóknari afþakkaði vinnuframlag hans og óskaði eftir því við dómsmálaráðherra að Helgi Magnús yrði leystur tímabundið frá störfum. Dómsmálaráðherra varð ekki við þeirri beiðni.

Málið á rætur að rekja til orðræðu sem Helgi Magnús viðhafði um Mohamed Thor Jóhannesson, áður Kourani, en Helgi Magnús og fjölskylda þurftu um árabil að sæta þrálátum hótunum af hálfu Kouranis.

Hann var kærður af stjórn Solaris, hjálparsamtaka fyrir hælisleitendur og flóttafólk á Íslandi, vegna ummælanna. Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari lagði í kjölfarið til við dómsmálaráðherra að Helgi Magnús yrði leystur tímabundið frá störfum vegna kærunnar.

Ákvað sig snemma í september

Guðrún Hafsteinsdóttir ákvað þann 9. september síðastliðinn að ekki væri tilefni til þess að leysa Helga Magnús frá störfum. 

„Það er afstaða dómsmálaráðherra að ummæli vararíkissaksóknara hafi ekki aðeins verið óviðeigandi og í ósamræmi við stöðu hans sem embættismanns, heldur hafi þau einnig verið til þess fallin að draga úr og grafa undan trúverðugleika embættis ríkissaksóknara og ákæruvaldsins í heild. Í því samhengi skipti máli að ummælin beindust meðal annars að innflytjendum og flóttafólki, tilteknum samtökum og einstaklingi sem starfar sem lögmaður. Þá var um ítrekaða háttsemi að ræða, sem var jafnframt sama eðlis og viðkomandi embættismaður fékk áminningu fyrir tveimur árum áður,“ sagði í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.

Sigríður verði að finna lendingu

Helgi Magnús segir í samtali við Vísi að hann reikni með því að snúa aftur til starfa á föstudag. „Sigríður er yfirmaður og hún verður einhvern veginn að finna lendingu á þessu, ég vil bara fara að vinna og að allir séu sáttir.“


Tengdar fréttir

Um­mælin ó­við­eig­andi en Helgi Magnús sleppur

Dómsmálaráðherra telur sérstakar aðstæður réttlæta ummæli Helga Magnúsar Gunnarssonar, vararíkissaksóknara, sem séu þó til þess fallin að grafa undan trúverðugleika ákæruvaldsins. Hann verður því ekki leystur frá störfum. Helgi Magnús fagnar ákvörðun ráðherra og hlakkar til að mæta aftur til vinnu.

Passi ekki að vera saksóknari og í pólitík á sama tíma

Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari segir í samtali við Vísi að komið hafi verið að máli við hann varðandi hugsanlegt framboð til Alþingis. Hann kveðst vilja halda trúnað um það hver var þar á ferð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×