Enski boltinn

Alisson snýr aftur í Liverpool liðið

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Alisson Becker sést hér ganga um borð í flugvélina sem fór með Liverpool liðið til Spánar.
Alisson Becker sést hér ganga um borð í flugvélina sem fór með Liverpool liðið til Spánar. Getty/Andrew Powell

Brasilíski markvörðurinn Alisson Becker er kominn til baka eftir meiðsli og verður með annað kvöld þegar Liverpool mætir Girona á útivelli í Meistaradeildinni.

Alisson er í hópnum fyrir leikinn og það er líklegt að hann standi í markinu. Alisson hefur verið meiddur síðan 5. október og á meðan hefur írski markvörðurinn Caoimhín Kelleher staðið í marki liðsins.

Alisson tognaði aftan í læri í 1-0 sigri á Crystal Palace og þurfti þá að fara af velli.

Kelleher hefur að mestu staðið sig mjög vel í marki Liverpool síðan en hann gerði dýrkeypt mistök undir lokin í 3-3 jafntefli á móti Newcastle United í síðasta deildarleik. Írinn missti af fyrirgjöf á klaufalegan hátt og Newcastle skoraði jöfnunarmarkið. Þau mistök kostuðu Liverpool tvö stig.

Knattspyrnustjórinn Arne Slot hefur talað um að Alisson sé aðalmarkvörður liðsins og að hann komi inn í liðið þegar hann er leikfær. Brasilíumaðurinn byrjar því líklega leikinn annað kvöld.

Alisson æfði með Liverpool í dag áður en hópurinn flaug saman til Spánar. Hann birti mynd af sér á samfélagsmiðlum þar sem hann skrifaði: „Svo ánægður að vera kominn til baka.“

Diogo Jota, sem hefur verið frá síðan í sigurleiknum á móti Chelsea 20. október síðastliðinn, æfði einnig með Liverpool í dag en hann er þó ekki í nítján manna hópnum fyrir Girona leikinn. Federico Chiesa er heldur ekki með vegna veikinda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×