Innlent

Arn­dís Anna og Brynjar vilja dómara­sæti

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Arndís og Brynjar sækjast bæði eftir embætti héraðsdómara.
Arndís og Brynjar sækjast bæði eftir embætti héraðsdómara. Vísir/Vilhelm

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, fyrrverandi þingmaður Pírata, og Brynjar Níelsson, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, eru á meðal umsækjenda um embætti héraðsdómara. 

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins. Í nóvember auglýsti dómsmálaráðuneytið laus til umsóknar tvö embætti héraðsdómara. 

„Annars vegar er um að ræða embætti dómara með fyrsta starfsvettvang við Héraðsdóm Reykjaness sem skipað verður í frá og með 13. mars 2025. Hins vegar er um að ræða setningu dómara með fyrsta starfsvettvang við Héraðsdóm Reykjavíkur. Sett verður í það embætti frá og með 1. janúar 2025, eða hið fyrsta eftir að dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara skilar ráðherra umsögn sinni, til og með 31. desember 2025,“ segir í tilkynningunni.

Fjórir sækja um tvær stöður

Umsóknarfresturinn rann út síðastliðinn mánudag, 2. desember, og eru umsækjendur eftirfarandi:

  •  Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir lögmaður (bæði embættin)
  • Brynjar Níelsson lögmaður (eingöngu um setningu)
  • Jónas Þór Guðmundsson lögmaður (eingöngu um skipun)
  • Sindri M. Stephensen dósent og settur héraðsdómari (bæði embættin)

Líkt og áður sagði eru Arndís og Brynjar fyrrverandi þingmenn. Arndís sat á þingi fyrir Pírata frá árinu 2021 og fram að nýafstöðnum kosningum, en hún sóttist ekki eftir endurkjöri.

Brynjar var þingmaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn árin 2013 til 2021, og var varaþingmaður frá kosningum 2021. Hann var í þriðja sæti á lista flokksins í Reykjavík norður í nýliðnum kosningum, en náði ekki inn á þing. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×