Stór­sigur eftir erfiða tíma hjá Barcelona

Aron Guðmundsson skrifar
Fyrirliðinn Raphinha fagnar marki gegn Mallorca í kvöld.
Fyrirliðinn Raphinha fagnar marki gegn Mallorca í kvöld. Getty/Cristian Trujillo

Eftir þrjá leiki í röð án sigurs styrkti Barcelona stöðu sína á toppi spænsku 1. deildarinnar í fótbolta í kvöld með frábærum sigri gegn Mallorca á útivelli, 5-1.

Barcelona hefur þar með fjögurra stiga forskot á Real Madrid á toppnum en Madridingar eiga þó tvo leiki til góða, þann fyrri á morgun gegn Athletic Bilbao.

Ferran Torres nýtti sér mistök Mallorca í kvöld til að koma Barcelona í 1-0 en Vedat Muriqi jafnaði metin rétt fyrir hálfleik.

Í seinni hálfleiknum átti Lamine Yamal stóran þátt í að koma Barcelona yfir og í þægilega stöðu. Fyrst fiskaði hann víti sem Raphinha skoraði úr, og svo átti hann magnaða utanfótarfyrirgjöf á Raphinha sem bætti við sínu öðru marki.

Frenkie de Jong og Pau Victor bættu svo við mörkum á síðustu tíu mínútunum og innsigluðu stórsigur gestanna.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira