Gengið frá kaupum Haga á færeyska verslanarisanum Árni Sæberg skrifar 27. nóvember 2024 16:59 Frá Högum: Finnur Oddsson, forstjóri, Magnús Magnússon, aðstoðarforstjóri og Eiríkur Jóhannsson, stjórnarformaður. Frá SMS: Niels Mortensen, forstjóri og eigandi SMS, Mortan Johannessen og Niles Johannesson einnig eigendur. Hagar Hagar hafa undirritað endanlegan kaupsamning vegna kaupa á færeyska verslanarisanum P/F SMS. Félagið rekur átta Bónusverslanir í Færeyjum, fjórar smærri verslanir í Þórshöfn undir nafninu Mylnan og stórverslunina Miklagarður í Þórshöfn.
Í tilkynningu Haga til Kauphallar segir að öll skilyrði kaupanna, sem tilkynnt var um þann 22. október, hafi verið uppfyllt, þar með talið áreiðanleikakönnun og samþykki eftirlitsaðila í Færeyjum. Markmið kaupanna sé að renna frekari stoðum undir og styrkja rekstur Haga á sviði dagvöruverslunar og auka skilvirkni rekstrar og vöruúrval SMS í Færeyjum. Ríflega sex milljarðar auk skuldayfirtöku Hagar greiði kaupverð með reiðufé að upphæð um 267 milljóna danskra króna og afhendingu 13.867.495 hluta í Högum að virði 60 milljóna króna. Það gerir heildarvirði SMS í viðskiptunum um 6,4 milljarða króna. Meðalgengi á hlutum Haga í viðskiptunum hafi verið 85,23 krónur, sem byggi að stærstu leyti á dagslokagengi Haga þann 18. október. Endanlegt uppgjör vegna kaupanna gæti breyst lítillega tengt rekstrarafkomu SMS á næstu tveimur til þremur árum. Hagar hafi fjármagnað hluta kaupverðs með nýju 200 milljóna danskra króna láni en til viðbótar yfirtaki Hagar nettó skuldir SMS upp á um það bil 140 milljónir danskra króna. Skuldsetning Haga aukist sem því nemur. Þannig er kaupverðið (e. enterprise value) 467 milljónir danskra króna, um 9,4 milljarðar íslenskra króna. Umfangsmikil starfsemi SMS sé leiðandi verslunarfélag í Færeyjum og reki meðal annars átta Bónus lágvöruverðsverslanir víða í Færeyjum, fjórar smærri verslanir í Þórshöfn undir nafninu Mylnan og stórverslunina Miklagarður í Þórshöfn. SMS sé einnig umsvifamikið í annarri starfsemi, meðal annars rekstri stærstu verslunarmiðstöðvar Færeyja, fjölda veitingastaða, smávöruverslana, brauð- og kökugerðar, kjötvinnslu og líkamsræktarstöðva. Að auki eigi félagið fjölbreytt fasteignasafn sem telji um ellefu þúsund fermetra, sem sé að mestu nýtt undir eigin starfsemi en að hluta leigt til þriðja aðila. Ríflega 700 manns starfi hjá SMS og dótturfélögum, en forstjóri félagsins sé Niels Mortensen. Niels sé jafnframt eigandi NM Holding sem hafi átt helmingshlut í SMS fyrir kaup Haga, en hinn helmingurinn hafi verið í eigu félagsins P/F Farcod. Heildartekjur SMS á rekstrarárinu 2023 hafi numið tæplega 700 milljónum danskra króna og hagnaður fyrir fjármagnsliði og afskriftir, EBITDA, hafi numið um 56 milljónum danskra króna. Bjóða SMS velkomin í fjölskylduna „Það er mér mikil ánægja að bjóða SMS í Færeyjum velkomin í Haga fjölskylduna. Við höfum á síðustu mánuðum kynnst starfsemi SMS vel, en fyrirtækið er bæði vel rekið og þjónar mikilvægu hlutverki í færeysku samfélagi. Áherslur í starfsemi SMS, m.a. á hagkvæmustu matarkörfuna og góða upplifun í verslunum, ríma vel við leiðarljós okkar hjá Högum. Við erum stolt af því að vera treyst fyrir eignarhaldi á SMS til framtíðar og munum styðja við áframhaldandi þróun og vöxt félagsins, Færeyingum til hagsbóta. SMS mun áfram njóta forystu Niels Mortensen, forstjóra, sem hefur leitt kröftuga uppbyggingu félagsins undanfarna tvo áratugi. Við hlökkum til samstarfs við Niels og framúrskarandi hóp starfsfólks í Færeyjum um að efla góðan rekstur enn frekar, m.a. með því að nýta tækifæri til að auka hagkvæmni, efla vöruval og þjónustu við landsmenn,“ er haft eftir Finni Oddssyni, forstjóra Haga. Þá er haft eftir Niels Mortensen, sem verður áfram forstjóri SMS, að með undirritun kaupsamnings við Haga sé mikilvægur og ánægjulegur áfangi í höfn fyrir SMS og fyrir verslun í Færeyjum. „Framúrskarandi starfsfólk SMS hefur á undanförnum áratugum byggt upp leiðandi verslunarfyrirtæki sem hefur ávallt haft það að forgrunni að stuðla að bættum lífskjörum Færeyinga með aðgengi að hagkvæmri matvörukörfu, áhugaverðum verslunum og í seinni tíð veitingastöðum. Með aðkomu Haga höfum við ekki aðeins fengið nýjan og traustan eiganda heldur einnig samstarfsaðila sem mun gera okkur kleift að gera jafnvel enn betur en áður. Það er okkur fyrrum eigendum hjartans mál að við tökum áfram þátt í rekstri og eignarhaldi SMS, nú í gegnum hlutafjáreign í Högum. Við hlökkum til að vinna með Högum að vexti og velgengni SMS og treysta um leið viðskipta- og vinasamband á milli Færeyja og Íslands.“
Hagar Færeyjar Verslun Kaup og sala fyrirtækja Mest lesið Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Viðskipti innlent Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Viðskipti innlent TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Viðskipti innlent Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Viðskipti innlent Sýn sakar Rúv um að mata ráðuneytið á röngum tölum Viðskipti Ný könnun: 60% umsækjenda fá aldrei svör Atvinnulíf Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Viðskipti innlent Nýr iX3: Tæknibomba sem kann gamla BMW-takta Samstarf Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Viðskipti innlent Vestfirðir sækja í sig veðrið – átta ný fyrirtæki á lista þeirra Framúrskarandi Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Sjá meira
Vestfirðir sækja í sig veðrið – átta ný fyrirtæki á lista þeirra Framúrskarandi Framúrskarandi fyrirtæki
Vestfirðir sækja í sig veðrið – átta ný fyrirtæki á lista þeirra Framúrskarandi Framúrskarandi fyrirtæki