Enski boltinn

Fær konuna til að eiga við draugana og ætlar ekki að pissa í hornin

Sindri Sverrisson skrifar
Ian Holloway tók nýverið við sem knattspyrnustjóri Swindon Town og óttast að það sé reimt á æfingasvæði liðsins.
Ian Holloway tók nýverið við sem knattspyrnustjóri Swindon Town og óttast að það sé reimt á æfingasvæði liðsins. Getty/George Wood

Knattspyrnustjórinn Ian Holloway, sem tók við Swindon Town á Englandi í október, telur að slæmt gengi liðsins gæti verið vegna þess að reimt sé á æfingavelli liðsins.

Holloway segir að sér sé fúlasta alvara og að hann ætli að fá eiginkonu sína til að mæta á svæðið og reyna að semja við draugana, svo að friður fáist.

„Ég flutti fyrstu liðsræðuna mína hérna og dyrnar opnuðust allt í einu upp á gátt. Ef þið skoðið hurðina þá sjáið þið að það hefði enginn getað opnað svona,“ sagði Holloway þegar hann fékk blaðamann New York Times í heimsókn.

Holloway greindi fyrst frá þessum meinta draugagangi í viðtali við BBC, og telur eitthvað undarlegt á seyði eftir að fyrirliði Swindon, Ollie Clarke, sleit liðband í ökkla á æfingu í síðustu viku.

Lið Swindon rambar á barmi falls úr ensku deildakeppninni en liðið er í 22. sæti D-deildarinnar, stigi frá fallsæti. Holloway vonast til þess að með því að sætta hina framliðnu verði gengi Swindon betra.

„Ég er algjörlega miður mín svo ég ætla að reyna að „hreinsa“ æfingasvæðið hérna, því fólk er að segja mér að það séu draugar hérna,“ sagði Holloway.

„Það er grafreitur einhvers staðar hérna nálægt. Í alvöru, ég er ekki að grínast,“ sagði Holloway.

„Ég held að æfingasvæðið okkar sé mjög nálægt gömlum grafreit svo ég ætla að fá konuna mína til að koma hingað og biðja allt þetta fólk afsökunar, og vonandi fer lukkan þá að verða með okkur í liði.“

Treystir á salvíu frekar en piss

Swindon hefur aðeins unnið einn sigur í síðustu tíu leikjum en liðið náði þó í sitt fyrsta stig undir stjórn Holloway um síðustu helgi, með því að ná 2-2 jafntefli við Accrington eftir að hafa lent undir.

Holloway ætlar ekki að ganga eins langt og Barry Fry, þáverandi stjóri Birmingham, gerði árið 1994 þegar hann pissaði í öll hornin á St Andrew‘s vellinum, í von um að losna við hundrað ára bölvun sem sögð var hvíla á leikvanginum. Birmingham vann í kjölfarið sjö af næstu tíu leikjum sínum, en féll þó á endanum niður um deild.

„Ég vil ekki gera það sem hann gerði, með því að pissa í hornin á vellinum, en ég ætla að fá konuna mína til að koma hérna með salvíubúntið sitt,“ sagði Holloway, tilbúinn að prófa ýmislegt til þess að aflétta hinni meintu bölvun og koma sínu liði á réttan kjöl.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×