Íslenski boltinn

Bjarni á­fram hjá KA

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Bjarni Aðalsteinsson verður áfram hjá KA.
Bjarni Aðalsteinsson verður áfram hjá KA. vísir/ANTON

Miðjumaðurinn Bjarni Aðalsteinsson hefur framlengt samning sinn við bikarmeistara KA. Nýi samningurinn gildir til 2026.

Bjarni hefur verið lykilmaður hjá KA undanfarin ár. Hann hefur leikið 105 leiki fyrir liðið í efstu deild og skorað átta mörk.

Á síðasta tímabili lék Bjarni 25 af 27 leikjum KA í Bestu deildinni auk fjögurra leikja í Mjólkurbikarnum. KA-menn stóðu þar uppi sem sigurvegarar eftir að hafa unnið Víkinga í úrslitaleik, 2-0.

Bjarni hefur leikið með KA alla sína tíð fyrir utan lánsdvöl hjá Magna á Grenivík 2018 og 2019.

KA endaði í 7. sæti Bestu deildarinnar, annað árið í röð, og varð bikarmeistari í fyrsta sinn í sögu félagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×