Börn, ungmenni og geðheilsa Tómas Þór Þórðarson og Gunnar Örn Jóhannsson skrifa 15. nóvember 2024 06:17 Börnum á grunnskólastigi er farið að líða betur samkvæmt íslensku æskulýðsrannsókninni (https://www.visir.is/g/20242648690d/visbendingar-um-ad-andleg-heilsa-barna-a-islandi-hafi-batnad) sem eru frábærar fréttir. Við vitum öll að unga fólkið okkar átti mjög erfitt í heimsfaraldrinum og margt þeirra hefur ekki náð sér eftir hann. Fram kemur í rannsókninni að almennt líður börnum á aldrinum 11-15 ára betur, einmannaleikinn er minni og þau finna fyrir meiri tilgang í skóla og tómstundum sem er frábært. Það sem er þó vitað er að menntaskólakrakkar, sem mörg hver eru komin á háskólaaldur í dag, fóru mun verr út úr þessum erfiðu tímum og er staðan í menntaskólum landsins sumstaðar mjög erfið vegna andlegra vandamála eftir mikla félagslegar hamlanir. Þetta er okkar næsta kynslóð og þurfum við að grípa strax inn í á þessu stigi. Einnig þarf að horfa til aðgerða sem styrkja hjúkrun og geðheilbrigðismál í gegnum alla skólagönguna svo hægt sé að reyna að sporna við mögulegum vandamálum fyrr og hjálpa börnunum okkar. Það er ekki bara öryggisventill komi eitthvað upp á sem svipar til COVID-19 heldur er það skylda okkar að styðja við næstu kynslóðir. Jafna fjárhagslegar byrðar Sjálfstæðisflokkurinn vill tryggja aukið aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu með einfaldara niðurgreiðslukerfi og tækninýjungum og um leið innleiða þjónustutryggingu. Það á nefnilega ekki að skipta máli hver veitir þjónustuna - heldur að hún sé góð og aðgengileg öllum óháð efnahag. Ferli að sálfræðiþjónustu er flókið þar sem Heilsugæslur, Menntaskólar, Háskólar, vinnustaðir, stéttafélög, sveitafélög, VIRK, SÁÁ og fleiri aðilar eru öll þáttakendur að greiða fyrir eða greiða niður sálfræðiþjónustu en stór hópur fólks neyðist samt sem áður til að greiða sjálft fyrir sína sálfræðiþjónustu. Þennan hóp þarf að ná utan um og jafna fjárhagslegar byrðar þeirra sem þurfa á sálfræðiþjónustu að halda líkt og gert er með aðra heilbrigðisþjónustu í greiðsluþáttökukerfi. Sambærileg aðgerð var gerð þegar kostnaður vegna sjúkraþjálfunar var felldur inn í greiðsluþáttökukerfi með frábærum árangri. Bæði fyrir nemendur og foreldra Þetta er hluti, bæði af stórsókn okkar í menntamálum (sem lesa má hér https://xd.is/menntamal/) sem og áherslum okkar í heilbrigðismálum, en þarna tala þessir tveir málaflokkar saman. Ef börn eru heilbrigð líður þeim vel í skólanum og þau haldast lengur í námi. Brottfall hefur verið alltof mikið á framhaldsskólastigi í kjölfar faraldursins og því þurfum við að leita allra leiða til að halda unga fólkinu okkar gangandi í gegnum námið. Bætt aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu, bæði fyrir nemendur og foreldra þeirra, er einn af lykilþáttunum í að rétta skútuna á menntaskólastigi en efla þarf líka skólahjúkrun á grunnskólastigi. Með tryggu aðgengi skólahjúkrunarfræðinga að sálfræðiþjónustu fyrir börn erum við að nýta getu og þekkingu þessa hóps til að grípa fyrr inn í þegar eitthvað bjátar á. Stefna í orði og borði Hafa ber í huga að börn endurspegla oft líðan foreldra sinna og því er ekki síst mikilvægt þegar við hugum að líðan barna að huga að líðan foreldra, því er afar brátt að jafna hlut foreldra þegar kemur að aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu. Þó létt til meðalþung mál séu í ágætum farvegi er staða þyngri mála viðkvæmari og mikilvægt að gera sambærilegt átak í að greiða aðgengi að sértækari úrræðum. Mannauðurinn sem sinnir geðheilbrigðismálum er takmörkuð auðlind og því mikilvægt að ólík stig geðheilbrigðisþjónustu vinni saman til að tryggja að aðilar fái viðeigandi úrræði og verðum fremst í flokki að tileinka okkur tækninýjungar og nýsköpun. Tækni fleygir fram og þekking okkar á geðheilbrigðisvanda hefur aukist til muna. Heilaörvunarmeðferðir hafa verið í notkun hér á landi í nokkur ár og eru farin að sýna góðan árangur í meðferð erfiðra þunglyndistilfella. Með aukinni þekkingu fleygir þessari tækni fram og verðum við sem samfélag að grípa tækifæri tækninýjunga sem þessara sem eru í senn öruggar, skalanlegar, skilvirkar og án lyfjanotkunar. Stefna Sjálfstæðisflokksins í geðheilbrigðismálum er skýr, hún birtist bæði í því sem á að gera og því sem búið er að gera. Efling sálfræðiþjónustu á heilsugæslum, sálfræðiþjónusta í menntaskólum og fjölgun geðlækna eru dæmi um árangur á síðustu ríkisstjórnar. Við viljum halda áfram þessari vegferð, nýta allt það sem vel hefur verið gert og byggja á því til framtíðar. Höfundar skipa 5. og 9. sæti lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík suður Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Opið bréf til forystu Kennarasambands Íslands (KÍ): Endurskoðum aðferðafræði verkfallsins Valgerður Bára Bárðardóttir Skoðun Verðbólga í boði Viðreisnar Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Kennari í verkfalli Hólmfríður Þorgeirsdóttir Skoðun Neglum niður vextina Kristrún Frostadóttir Skoðun 16 ára aldurstakmark á samfélagsmiðlum Skúli Bragi Geirdal Skoðun Ísland 2074 Kjartan Magnússon Skoðun 200 þúsund til að búa í fatahengi LOL Derek T. Allen Skoðun Er 0,145% bankaskattur virkilega nóg? Ásthildur Lóa Þórsdóttir Skoðun Úreltar og óréttmætar hvalveiðar Henry Alexander Henrysson Skoðun Börn, ungmenni og geðheilsa Tómas Þór Þórðarson,Gunnar Örn Jóhannsson Skoðun Skoðun Skoðun Ný ríkisstjórn styrki meistarakerfi löggiltra iðngreina Hópur formanna fag- og meistarafélaga innan SI skrifar Skoðun Stefnubreyting Miðflokksins gegn hagsmunum bænda Þórarinn Ingi Pétursson,Þuríður Lillý Sigurðardóttir,Jóhann Friðrik Friðriksson,Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson,Stefán Vagn Stefánsson,Halla Signý Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Farsældarlögin snúast ekki um börnin Lúðvík Júlíusson skrifar Skoðun Víðtæk og öflug barátta gegn einmanaleika á Íslandi Guðrún Svava Viðarsdóttir skrifar Skoðun Framsókn í geðheilbrigðismálum Kjartan Helgi Ólafsson skrifar Skoðun 200 þúsund til að búa í fatahengi LOL Derek T. Allen skrifar Skoðun Kennari í verkfalli Hólmfríður Þorgeirsdóttir skrifar Skoðun Við viljum – kröfugerð fólks með fötlun! Unnur Hrefna Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Opið bréf til forystu Kennarasambands Íslands (KÍ): Endurskoðum aðferðafræði verkfallsins Valgerður Bára Bárðardóttir skrifar Skoðun Óæskilegar uppskerur Anna Bergþórsdóttir skrifar Skoðun Úreltar og óréttmætar hvalveiðar Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Bætum umhverfið svo öll börn geti blómstrað Kristín Kolbrún Kolbeinsdóttir Waage skrifar Skoðun Neglum niður vextina Kristrún Frostadóttir skrifar Skoðun Áhyggjulaust ævikvöld Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Verðbólga í boði Viðreisnar Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Afsláttur af mannréttindum Heiða Ingimarsdóttir skrifar Skoðun Er 0,145% bankaskattur virkilega nóg? Ásthildur Lóa Þórsdóttir skrifar Skoðun Útrýmum kjaragliðnun Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun 16 ára aldurstakmark á samfélagsmiðlum Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ísland 2074 Kjartan Magnússon skrifar Skoðun Börn, ungmenni og geðheilsa Tómas Þór Þórðarson,Gunnar Örn Jóhannsson skrifar Skoðun Kærleikur í kaós Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Kærleikur í kaós Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Uppbyggileg réttvísi (e. Restorative Justice) Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Þúsundir á vergangi - Upplýsa verður ranglætið Þorsteinn Sæmundsson skrifar Skoðun Flokkur fólksins á meðal fólks Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar Skoðun Er sjávarútvegurinn bara aukaleikari? Kristófer Máni Sigursveinsson skrifar Skoðun Hæstvirtur dómsmálaráðherra, við ætlumst til meira af þér Matthías Kormáksson skrifar Skoðun Kennarar – sanngjörn laun? Ólöf P. Úlfarsdóttir skrifar Skoðun Sjálfsvígstíðni - Gerum betur Þórarinn Guðni Helgason skrifar Sjá meira
Opið bréf til forystu Kennarasambands Íslands (KÍ): Endurskoðum aðferðafræði verkfallsins Valgerður Bára Bárðardóttir Skoðun
Skoðun Ný ríkisstjórn styrki meistarakerfi löggiltra iðngreina Hópur formanna fag- og meistarafélaga innan SI skrifar
Skoðun Stefnubreyting Miðflokksins gegn hagsmunum bænda Þórarinn Ingi Pétursson,Þuríður Lillý Sigurðardóttir,Jóhann Friðrik Friðriksson,Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson,Stefán Vagn Stefánsson,Halla Signý Kristjánsdóttir skrifar
Skoðun Opið bréf til forystu Kennarasambands Íslands (KÍ): Endurskoðum aðferðafræði verkfallsins Valgerður Bára Bárðardóttir skrifar
Skoðun Uppbyggileg réttvísi (e. Restorative Justice) Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Opið bréf til forystu Kennarasambands Íslands (KÍ): Endurskoðum aðferðafræði verkfallsins Valgerður Bára Bárðardóttir Skoðun