Bara algjört vesen.
Allt í hnút.
Við samt jafnvel búin að reyna að skítamixa eitthvað.
En enn er allt í steik.
Jafnvel verri staða komin upp en áður....
Ekkert okkar vill lenda í einhverju veseni en sú staða getur nú samt komið upp hjá okkur öllum að það er ekkert annað í stöðunni en að setjast niður með yfirmanninum og ræða stöðuna.
Upplýsa að upp sé komið ákveðið vandamál.
Sem þarf að leysa, sama hvers eðlis vandamálið er eða hverjum er um að kenna og svo framvegis.
Hér eru nokkur góð ráð um það sem við eigum EKKI að segja þegar við tökum þetta samtal við yfirmanninn.
1. Ekki detta í smáatriðin
Gott er að láta yfirmanninn vita aðeins hvers eðlis málið er, áður en þið takið samtalið.
Stundum er þetta gott því yfirmenn eiga jú misauðvelt með að taka við upplýsingum um eitthvað vesen.
En eins gæti yfirmaðurinn vilja kanna svolítið málin sjálf/ur áður en samtalið hefst.
Hér er stóra málið að upplýsa um hver staðan er, en fara EKKI í smáatriðin. Ekki í síma né í tölvupósti, æskilegra er að bíða með þau þar til samtalið á sér stað.
2. Ekki kenna öðrum
Það sem engum finnst skemmtilegt er að þurfa að viðurkenna á sig mistök. En hvort sem hlutirnir eru þér að kenna eða ekki, skiptir tvennt máli í samtalinu:
Ekki kenna öðrum um. Og ekki firra sjálfan þig af ábyrgð.
Í vinnunni erum við ein liðsheild. Okkur verður öllum á og þótt hlutirnir séu ekki okkur að kenna, skulum við frekar einbeita okkur að því að ræða þá stöðu sem upp er komin en ekki gleyma okkur í tali um hverjum er að kenna.
3. Ekki gera öðrum upp skoðanir
Þegar vandamál eru rædd þarf oft að reyna að átta sig á því hvers vegna sú staða er komin upp, sem þó er upp komin.
Öll förum við því í alls kyns vangaveltur, meðal annars um það hvers vegna einhver sagði þetta eða hitt eða hvers vegna einhver gerði þetta eða hitt (eða gerði það ekki).
Það sem skiptir samt máli að gera EKKI er að gera öðru fólki upp skoðanir eða viðhorf, nema þú hafir einfaldlega haldbærar sannanir fyrir því að þú farir rétt með.
4. Ekki þykjast vita allt
Ef þú veist allt betur en aðrir, þarftu ekki að ræða við yfirmanninn um eitt eða neitt.
Og varla væri neitt vandamál í gangi þá, eða hvað?
Eitt af því sem ekkert af okkur á að gera þegar við ræðum vandamál við yfirmenn okkar, er að þykjast vita allt. Jafnvel betur en aðrir.
5. Ekki æsa þig
Sama hvers eðlis málið er, skiptir miklu máli að taka samtalið um vandamálið við yfirmanninn þegar þú ert ekki í uppnámi eða reið/ur.
Því þú ert ekki að fara að setjast niður til að rífast, heldur að ræða eitthvað vandamál og finna út úr því með þínum yfirmanni, hver eru réttustu næstu skref til að leysa úr stöðunni.
Að æsa okkur, rífast eða ræða vandamál í uppnámi er alls ekki það sem við eigum að gera. Frekar skulum við bíða með samtalið þar til við höfum náð ró okkar og yfirvegun.