Allt í steik: Samtalið við yfirmanninn Rakel Sveinsdóttir skrifar 6. nóvember 2024 07:01 Vá hvað okkur líður illa þegar það fer allt í steik hjá okkur í vinnunni. Eitthvað sem við svo sannarlega vildum ekki að gerðist, gerðist. Jafnvel versnaði þegar við reyndum eitthvað skítamix. En þegar þessi staða kemur upp, er ekkert annað en að ræða við yfirmanninn og passa sig þá á þeim fimm atriðum sem við eigum EKKI að gera. Vísir/Getty Já það sem gerist á bestu bæjum og meira að segja hjá okkur öllum stundum að það fer hreinlega allt í steik.
Bara algjört vesen. Allt í hnút. Við samt jafnvel búin að reyna að skítamixa eitthvað. En enn er allt í steik. Jafnvel verri staða komin upp en áður.... Ekkert okkar vill lenda í einhverju veseni en sú staða getur nú samt komið upp hjá okkur öllum að það er ekkert annað í stöðunni en að setjast niður með yfirmanninum og ræða stöðuna. Upplýsa að upp sé komið ákveðið vandamál. Sem þarf að leysa, sama hvers eðlis vandamálið er eða hverjum er um að kenna og svo framvegis. Hér eru nokkur góð ráð um það sem við eigum EKKI að segja þegar við tökum þetta samtal við yfirmanninn. 1. Ekki detta í smáatriðin Gott er að láta yfirmanninn vita aðeins hvers eðlis málið er, áður en þið takið samtalið. Stundum er þetta gott því yfirmenn eiga jú misauðvelt með að taka við upplýsingum um eitthvað vesen. En eins gæti yfirmaðurinn vilja kanna svolítið málin sjálf/ur áður en samtalið hefst. Hér er stóra málið að upplýsa um hver staðan er, en fara EKKI í smáatriðin. Ekki í síma né í tölvupósti, æskilegra er að bíða með þau þar til samtalið á sér stað. 2. Ekki kenna öðrum Það sem engum finnst skemmtilegt er að þurfa að viðurkenna á sig mistök. En hvort sem hlutirnir eru þér að kenna eða ekki, skiptir tvennt máli í samtalinu: Ekki kenna öðrum um. Og ekki firra sjálfan þig af ábyrgð. Í vinnunni erum við ein liðsheild. Okkur verður öllum á og þótt hlutirnir séu ekki okkur að kenna, skulum við frekar einbeita okkur að því að ræða þá stöðu sem upp er komin en ekki gleyma okkur í tali um hverjum er að kenna. 3. Ekki gera öðrum upp skoðanir Þegar vandamál eru rædd þarf oft að reyna að átta sig á því hvers vegna sú staða er komin upp, sem þó er upp komin. Öll förum við því í alls kyns vangaveltur, meðal annars um það hvers vegna einhver sagði þetta eða hitt eða hvers vegna einhver gerði þetta eða hitt (eða gerði það ekki). Það sem skiptir samt máli að gera EKKI er að gera öðru fólki upp skoðanir eða viðhorf, nema þú hafir einfaldlega haldbærar sannanir fyrir því að þú farir rétt með. 4. Ekki þykjast vita allt Ef þú veist allt betur en aðrir, þarftu ekki að ræða við yfirmanninn um eitt eða neitt. Og varla væri neitt vandamál í gangi þá, eða hvað? Eitt af því sem ekkert af okkur á að gera þegar við ræðum vandamál við yfirmenn okkar, er að þykjast vita allt. Jafnvel betur en aðrir. 5. Ekki æsa þig Sama hvers eðlis málið er, skiptir miklu máli að taka samtalið um vandamálið við yfirmanninn þegar þú ert ekki í uppnámi eða reið/ur. Því þú ert ekki að fara að setjast niður til að rífast, heldur að ræða eitthvað vandamál og finna út úr því með þínum yfirmanni, hver eru réttustu næstu skref til að leysa úr stöðunni. Að æsa okkur, rífast eða ræða vandamál í uppnámi er alls ekki það sem við eigum að gera. Frekar skulum við bíða með samtalið þar til við höfum náð ró okkar og yfirvegun.
Góðu ráðin Tengdar fréttir Góð ráð gegn mánudagsvinnukvíðanum Þótt við séum ánægð í vinnunni okkar kannast margir við að finna fyrir kvíða þegar líður á helgarfríið, hnútur sem stækkar á sunnudagskvöldum og er ekki enn farinn þegar að við mætum til vinnu á mánudagsmorgni. 31. janúar 2022 07:01 Eitraður starfsmaður og góð ráð Það er stundum talað um eitraða vinnustaðamenningu. Eða eitraða stjórnarhætti. En hvað með stöðuna þegar stjórnandi er með eitraðan starfsmann? 21. október 2024 07:03 Þrjú snilldarráð fyrir góð samskipti Góð samskipti eru alltaf lykilatriði. Hvort heldur sem er í leik eða starfi. Við viljum öll standa okkur sem best í góðum samskiptum en eigum það mögulega til að gleyma okkur. 12. janúar 2024 07:00 Andfúli vinnufélaginn og góð ráð Við erum andfúl á morgnana þegar að við vöknum en sem betur fer er það frá um leið og við höfum burstað tennurnar. Og þó. 19. ágúst 2022 07:01 Góð ráð fyrir lata starfsmenn Við eigum okkur öll okkar daga. Já, svona leti-daga. Mætum til vinnu og erum hálf löt allan daginn. Komum litlu í verk. Eigum erfitt með að einbeita okkur. Erum þreytt. Eða með hugann annars staðar. Sem betur fer, eru leti-dagarnir ekki viðvarandi. Daginn eftir mætum við til vinnu á ný, galvösk og brettum upp ermar. 12. júlí 2021 07:01 Mest lesið Vill lýsa yfir vantrausti á stjórnarmann vegna sautján ára tölvubréfs Viðskipti innlent Bankastjóri Íslandsbanka: „Ég samdi við Brynju strax á fyrsta alvöru stefnumótinu...“ Atvinnulíf Einungis áfengi í boði hjá Heimkaupum Viðskipti innlent Fjórir sérfræðingar skoða möguleika Íslands í gjaldmiðlamálum Viðskipti innlent Kvartanir borist vegna aflýstra flugferða Neytendur Gátu ekki fært sönnur á fullyrðingar um virkni sveppadropa og dufts Neytendur Einföldun að segja að íslensk ferðaþjónusta sé láglaunagrein Viðskipti innlent Segja lækkun á olíu ekki hafa skilað sér til íslenskra neytenda Viðskipti innlent Arctic Fish fær heimild til frekara fiskeldis Viðskipti innlent Falið að leiða þjónustu og upplifun hjá Mílu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bankastjóri Íslandsbanka: „Ég samdi við Brynju strax á fyrsta alvöru stefnumótinu...“ Framkvæmdastjóri í góðri æfingu með brandara og hrekki Fordómar: „Mætti halda að á Íslandi væri ekkert sölustarf til“ „Þarf lítið til að koma mér af stað í söng og stemningu“ Að leysa hratt og vel úr málum í stað þess að pirrast Milljónavirði af gini á víðavangi og búið til með íslensku veðri Bissnessinn í tónlist: „Þetta er ekki lengur eins og þetta var í gamla daga“ Á erfitt með að tapa fyrir eiginmanninum í skrafli Að takast á við sjokkerandi breytingar í vinnunni Mjög mikilvægt að eiga besta vin í vinnunni Bolabítur á buxnaskálm: Fjöldi „kerfisfræðinga“ að misnota veikindaréttinn „Ég hef þó aldrei kunnað vel við titilinn framkvæmdastjóri“ Fjórar týpur af yfirmönnum sem eru sjálfir að drukkna í vinnu Segir mun á launum stjórnarmanna sláandi Íslenskir kvenstjórnendur: Bjartsýnar en með áhyggjur af stríði Lausnamiðuð ferilskrá og að þora Sjá meira
Góð ráð gegn mánudagsvinnukvíðanum Þótt við séum ánægð í vinnunni okkar kannast margir við að finna fyrir kvíða þegar líður á helgarfríið, hnútur sem stækkar á sunnudagskvöldum og er ekki enn farinn þegar að við mætum til vinnu á mánudagsmorgni. 31. janúar 2022 07:01
Eitraður starfsmaður og góð ráð Það er stundum talað um eitraða vinnustaðamenningu. Eða eitraða stjórnarhætti. En hvað með stöðuna þegar stjórnandi er með eitraðan starfsmann? 21. október 2024 07:03
Þrjú snilldarráð fyrir góð samskipti Góð samskipti eru alltaf lykilatriði. Hvort heldur sem er í leik eða starfi. Við viljum öll standa okkur sem best í góðum samskiptum en eigum það mögulega til að gleyma okkur. 12. janúar 2024 07:00
Andfúli vinnufélaginn og góð ráð Við erum andfúl á morgnana þegar að við vöknum en sem betur fer er það frá um leið og við höfum burstað tennurnar. Og þó. 19. ágúst 2022 07:01
Góð ráð fyrir lata starfsmenn Við eigum okkur öll okkar daga. Já, svona leti-daga. Mætum til vinnu og erum hálf löt allan daginn. Komum litlu í verk. Eigum erfitt með að einbeita okkur. Erum þreytt. Eða með hugann annars staðar. Sem betur fer, eru leti-dagarnir ekki viðvarandi. Daginn eftir mætum við til vinnu á ný, galvösk og brettum upp ermar. 12. júlí 2021 07:01
Bankastjóri Íslandsbanka: „Ég samdi við Brynju strax á fyrsta alvöru stefnumótinu...“ Atvinnulíf
Bankastjóri Íslandsbanka: „Ég samdi við Brynju strax á fyrsta alvöru stefnumótinu...“ Atvinnulíf