Innlent

Lög­reglu­þjónn frá Hong Kong lést við Fossá á Skaga

Árni Sæberg skrifar
Slysið varð nærri Skagaströnd.
Slysið varð nærri Skagaströnd. Vísir/Vilhelm

Ferðamaðurinn sem lést í bílslysi við Fossá á Skaga í gær var lögregluþjónn frá Hong Kong. Eiginkona hans, sem slasaðist í slysinu, er einnig lögregluþjónn. 

Ökumaður bifreiðarinnar sem ók út af og valt við Fossá á Skaga, norðan Skagastrandar, um klukkan tvö í gær lést í slysinu. Farþegi í ökutækinu var fluttur með sjúkrabifreið á Sjúkrahúsið á Akureyri til aðhlynningar.

Kínverski áskriftarmiðillinn South China morning post greinir frá því að maðurinn hafi verið lögregluþjónn frá Hong Kong. Haft er eftir heimildum að maðurinn og eiginkona hans hafi leigt sér bíl til þess að ferðast um landið.

Ekki hefur náðst í Lögregluna Norðurlandi vestra við vinnslu fréttarinnar.


Tengdar fréttir

Banaslys við Fossá

Ökumaður bifreiðarinnar sem ók út af og valt við Fossá á Skaga, norðan Skagastrandar, um klukkan tvö í dag lést í slysinu. Farþegi í ökutækinu var fluttur með sjúkrabifreið á Sjúkrahúsið á Akureyri til aðhlynningar.

Tveir í bílnum sem ók út af

Tveir voru í ökutæki sem ók út af og valt við Fossá á Skaga, norðan Skagastrandar, um klukkan tvö í dag. Viðbragðsaðilar eru enn að störfum á vettvangi og hefur rannsóknarnefnd samgönguslysa verið kölluð til. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×