Innlent

Tveir í bílnum sem ók út af

Tómas Arnar Þorláksson skrifar
Slysið átti sér stað við Fossá á Skaga.
Slysið átti sér stað við Fossá á Skaga. Skjáskot/Google Maps

Tveir voru í ökutæki sem ók út af og valt við Fossá á Skaga, norðan Skagastrandar, um klukkan tvö í dag. Viðbragðsaðilar eru enn að störfum á vettvangi og hefur rannsóknarnefnd samgönguslysa verið kölluð til. 

Þetta staðfestir Birgir Jónasson, lögreglustjóri á Norðurlandi vestra, í samtali við Vísi. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð á vettvang um klukkan 14 í dag þegar að fyrsta tilkynning um slysið barst. 

Þegar þyrlan var á leiðinni á vettvang var útkallið afturkallað. Birgir gat ekki sagt til um ástand þeirra sem voru í bifreiðinni en von er á tilkynningu frá lögreglu seinna í kvöld. 

„Það stendur yfir vettvangsrannsókn. Það er ekki alveg búið að ná utan um vettvangsrannsókn eins og er,“ sagði Birgir.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×