Dagur og Króatía úr leik á Ólympíuleikunum í París Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. ágúst 2024 20:35 Degi Sigurðssyni tókst ekki að koma króatíska landsliðinu upp úr sínum riðli á Ólympíuleikunum í París. Getty/Igor Kralj Króatíska handboltalandsliðið kemst ekki í átta liða úrslit handboltakeppni Ólympíuleikanna í París. Nú er líka ljóst hvaða þjóðir mætast í átta liða úrslitunum. Þetta varð ljóst eftir að Króatía tapaði með einu marki á móti Spáni í kvöld, 32-31, í hreinum úrslitaleik um sæti í útsláttarkeppninni. Spænska liðið var skrefinu á undan allan leikinn, komst í 8-4, 12-8, 17-12 og var 20-15 yfir í hálfleik. Króatíska liðið beit frá sér í seinni hálfleiknum og náði að minnka muninn í eitt mark. Nær komust þeir ekki fyrr en alveg í blálokin þegar þeir jöfnuðu metin en Spánverjar skoruðu síðan sigurmarkið þremur sekúndum fyrir leiklok. Króatar urðu að vinna leikinn og því hefði jafntefli dugað spænska liðinu. Spánverjar fara í átta liða úrslitin ásamt Þýskalandi, Svíþjóð og Slóveníu. Króatía vann tvo leiki á leikunum og báða á móti landsliðum sem Dagur hefur þjálfað, Japan og Þýskalandi. Þjóðverjar unnu alla leiki sína í riðlakeppninni nema þennan leik á móti Króatíu. Alfreð Gíslason og lærisveinar hans í Þýskalandi mæta Frakklandi í átta liða úrslitunum en þau líta annars þannig út.
Þetta varð ljóst eftir að Króatía tapaði með einu marki á móti Spáni í kvöld, 32-31, í hreinum úrslitaleik um sæti í útsláttarkeppninni. Spænska liðið var skrefinu á undan allan leikinn, komst í 8-4, 12-8, 17-12 og var 20-15 yfir í hálfleik. Króatíska liðið beit frá sér í seinni hálfleiknum og náði að minnka muninn í eitt mark. Nær komust þeir ekki fyrr en alveg í blálokin þegar þeir jöfnuðu metin en Spánverjar skoruðu síðan sigurmarkið þremur sekúndum fyrir leiklok. Króatar urðu að vinna leikinn og því hefði jafntefli dugað spænska liðinu. Spánverjar fara í átta liða úrslitin ásamt Þýskalandi, Svíþjóð og Slóveníu. Króatía vann tvo leiki á leikunum og báða á móti landsliðum sem Dagur hefur þjálfað, Japan og Þýskalandi. Þjóðverjar unnu alla leiki sína í riðlakeppninni nema þennan leik á móti Króatíu. Alfreð Gíslason og lærisveinar hans í Þýskalandi mæta Frakklandi í átta liða úrslitunum en þau líta annars þannig út. Átta liða úrslit í handbolta karla á ÓL 2024: Þýskaland - Frakkland Spánn-Egyptaland Noregur - Slóvenía Danmörk -Svíþjóð
Átta liða úrslit í handbolta karla á ÓL 2024: Þýskaland - Frakkland Spánn-Egyptaland Noregur - Slóvenía Danmörk -Svíþjóð
Handbolti Ólympíuleikar 2024 í París Mest lesið Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport „Hann kvartar yfir öllu“ Enski boltinn Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Körfubolti Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Íslenski boltinn Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Fleiri fréttir Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Sjá meira