Einar býður Sunnu í kaffi og vill ræða áburð um karlrembu Jakob Bjarnar skrifar 25. júlí 2024 14:24 Einar fer hörðum orðum um þær ályktanir sem Sunna dregur varðandi það að hann sé karlremba en lýkur pistlinum á því að bjóða henni í kaffi, því lítill jassheimur megi ekki við öðru eins ósætti og þessu. Tónlistarmaðurinn Einar Scheving sver og sárt við leggur að hann sé ekki karlremba eins og Sunna Gunnlaugsdóttir jasstónlistarmaður heldur fram í umdeildum pistli.
Eins ólíklega og það hljómar nötrar hinn litli jassheimur á Íslandi svo um munar en það er eftir að Sunna Gunnlaugs ritaði grein sem hún birti á Facebook. Þar fjallar hún um Jazzhátíð Reykjavíkur og sakaði hún þá sem þar hefðu setið með henni í stjórn í kringum 2014 og árin þar á eftir um karlrembu. Þá vendir hún kvæði sínu í kross og segir af atviki; hún hafi fengið skilaboð frá Einari (sem er ónafngreindur í pistlinum) vegna þess að honum hafi borist til eyrna að hún bæði fólk að ráða hann ekki í bönd á tónleikaseríum þar sem hún kæmi fram. Hann vildi fá útskýringar á þessu. Allt þetta segir hún að undirlagi Feðraveldisins. Segist alls ekki vera karlremba Einar hefur hins vegar minna en engan áhuga á því að vera kenndur við það veldi. Hann hefur nú þegar svarað pistli Sunnu með tveimur ítarlegum færslum á Facebook og núna birtir hann grein á Vísi þar sem hann fer í saumana á málinu. Einar ætlar sér ekki að sitja undir þessu. Hann segir að þrátt fyrir kvíða og svefnleysi undanfarna daga muni hann halda ótrauður áfram að gera það sem hann gerir best sem er að búa til tónlist og spila með því frábæra tónlistarfólki sem Ísland á. „Okkar litli jazzbransi má einfaldlega ekki við svona ósætti og langar mig því að bjóða aðilanum sem ritaði færsluna í kaffibolla þannig að við getum sett þetta leiðindamál aftur fyrir okkur og horft fram á veginn sameinuð en ekki sundruð. Ef í ljós kemur að ég hafi með einhverjum hætti sært hana ómeðvitað, þá mun ég að sjálfsögðu biðjast afsökunar.“ Hefur hætt sér út á jarðsprengjusvæði Einar segist vita að hann tali fyrir hönd margra karlkyns-kollega að þeir fagni því ávallt þegar kvenkyns hljóðfæraleikarar og söngvarar bætist við jazzflóruna, sem og alla aðra flóru. Og hann vonar að Jazzhátíð Reykjavíkur, sem hefst eftir mánuð fái meiri umfjöllun í fjölmiðlum en þetta mál. Einar segist hafa stigið á jarðsprengjur í umræðunni þar sem hugmyndafræði ráði öllu en ekki skynsemi. „Teorían hlýtur að vera rétt, jafnvel þótt raunveruleikinn sé rangur,“ segir Einar og vitnar í frænda sinn. Einar Scheving hefur nákvæmlega engan áhuga á því að sitja undir þeim stimpli að teljast varðhundur feðraveldisins.aðstend Hann hafi unnið sér það til óyndis að hafa efast um stefnu stjórnvalda á Covid-tímum og hann hafi ritað grein um forsetakosningarnar þar sem hann taldi það móðgun við heilbrigða skynsemi þegar „prófessor við Háskóla Íslands hélt því fram í fúlustu alvöru að kvenhatri væri um að kenna að margir vildu ekki sjá fyrrum forsætisráðherra fara yfir í forsætisembættið, jafnvel þótt þrír efstu frambjóðendurnir samkvæmt skoðanakönnunum væru konur.“ Fjarstæðukennd ásökun Einar segist ekki vita hvort hann sé skotmark í slaufun, hvort hann hafi unnið til þess en vonar ekki. En grein Sunnu hafi komið eins „og þruma úr heiðskíru lofti“ sem birtist sem „ósmekkleg færsla á Fésbókinni fyrr í vikunni, þar sem ég, ásamt reyndar hálfum jazzbransanum, var t.d. sakaður um karlrembu og forréttindafrekju – hluti sem eru eins fjarri mínu eðli og hugsast getur.“ Einar segist hafa átt frábært samstarf við aragrúa fólks af báðum kynjum, hvort heldur sem tónlistamaður eða kennari, verið vel liðinn á öllum þessum stöðum og tel mig yfirhöfuð heppinn að eiga góða vini og samstarfsfólk í tónlistarbransanum óháð kyni. „Svo þegar ein manneskja sem ég þekki lítið og hef aldrei starfað með sakar mig um fjarstæðukennda og áðurnefnda hluti, þá hlýtur það allt í einu að vera satt og rétt. Fjöldi fólks, m.a.s. samstarfsfólk mitt stökk á þennan vagn án þess að depla auga. Eins og Pétur frændi orðaði það: „teórían hlýtur að vera rétt, jafnvel þótt raunveruleikinn sé rangur.““
Tónlist Tónlistarnám Jafnréttismál Mest lesið Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Innlent Fleiri fréttir Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sjá meira