Var rekinn fyrir rúmu ári en fær enn 36 milljónir á viku frá Chelsea Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 19. júlí 2024 09:31 Graham Potter stýrði Chelsea í rúmt hálft ár. getty/John Walton Þrátt fyrir að Graham Potter hafi verið rekinn sem knattspyrnustjóri Chelsea í byrjun apríl í fyrra fær hann enn greitt frá félaginu.
Eftir að hafa náð góðum árangri með Brighton var Potter ráðinn stjóri Chelsea í september 2022. Liðið vann hins vegar aðeins tólf af 31 leik undir stjórn Potters og hann var látinn taka pokann sinn 2. apríl í fyrra. Potter er enn án starfs og fær því enn greitt frá Chelsea. Og það eru engar smá upphæðir. Englendingurinn fær nefnilega tvö hundruð þúsund pund í vikulaun frá Chelsea. Það jafngildir 36 milljónum íslenskra króna. Samningur Potters við Chelsea hefði átt að renna út í október og hann fær því greitt frá félaginu þangað til. Potter er meðal þeirra sem hafa verið orðaðir við starf landsliðsþjálfara Englands sem er laust eftir að Gareth Southgate sagði af sér á mánudaginn. Ef Potter verður ráðinn landsliðsþjálfari fær Chelsea bætur frá enska knattspyrnusambandinu. Chelsea hefur næsta tímabil með nýjan mann í brúnni; Enzo Maresca sem var ráðinn stjóri liðsins í byrjun mánaðarins. Mauricio Pochettino stýrði Chelsea á síðasta tímabili.
Enski boltinn Mest lesið Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Fótbolti „Hefurðu enga sómakennd?“ Fótbolti Áður óbirt efni frá heimsókn landsliðsins í vinsælasta þátt Bandaríkjanna Körfubolti Ótrúlegasta stoðsending tímabilsins strax í nóvember Körfubolti Verstappen heimsmeistari fjórða árið í röð Formúla 1 Ætla flokkarnir að reisa ný heimili fyrir landsliðin? Sport Hefur Ben Simmons náð botninum? Körfubolti ÍBV kærði Hauka: „Hvernig gæti HSÍ verið annarrar skoðunar en reglurnar?“ Handbolti Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Enski boltinn Framarar sótt fjóra bita í næstu deild Íslenski boltinn Fleiri fréttir Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Létt gönguferð í skóginum hjá Arsenal Einfalt hjá Chelsea sem sækir að toppnum Fjórtán ára á æfingum með Arsenal Fær konuna til að eiga við draugana og ætlar ekki að pissa í hornin Amorim fullur sjálfstrausts á fyrsta blaðamannafundinum Meistararnir og Skytturnar missa út lykilmenn Lewandowski fékk ekki að fara til Man. Utd Ed Sheeran hjálpaði Ipswich að ná í leikmann rétt fyrir Taylor Swift tónleika Guardiola samdi til ársins 2027 Rannsókn á hegðun David Coote enn í fullum gangi Tuchel „stelur“ Hilario frá Chelsea og tekur hann inn í teymið Amorim vill að United fái Gomes aftur Martröð fyrirliða Chelsea heldur áfram Neville gagnrýnir Bandaríkjaför Rashford og Casemiro Sagður hafa tvo leiki til að bjarga starfinu Fær ekki að eyða í leikmenn í janúar Liverpool og Newcastle berjast um Mbeumo Fengu ljót skilaboð eftir óléttumynd: „Fyrirmunað að skilja þessi viðbrögð“ Guardiola framlengir við Man. City Klopp vildi fá Antony í stað Salah Tengdasonur Keane skoraði fyrir enska landsliðið Heimildaþáttaröð um lið Rooney og Guðlaugs Victors Landsliðskonurnar eiga von á barni saman Amorim fékk loksins að stýra æfingu hjá Man. United Liverpool fær Van Dijk fyrr til baka Fékk sjö leikja bann fyrir það sem hann sagði um eigin fyrirliða Man. Utd reynir við rándýra ungstirnið sem Amorim leyfði að blómstra Van Nistelrooy sækir um stjórastarfið hjá Coventry Sjá meira