Í fréttum Stöðvar 2 mátti sjá eina af breiðþotum Air Atlanta lenda á flugvellinum í Jedda eftir að hafa skilað pílagrímum heim til Indónesíu. Önnur áhöfn var að leggja upp í nærri níu tíma flug á annarri þotu með pílagríma, einnig til Indónesíu. Þotur Atlanta eru allar merktar Saudia Airlines, kaupanda þjónustunnar.
Það er krefjandi fyrir flugstjórann Guðlaug Inga Sigurðsson að ferðast yfir öll tímabeltin, fyrst frá Íslandi til Sádí-Arabíu og síðan enn lengra til Indónesíu. Við hittum hann á flugvellinum klukkan fimm að morgni að staðartíma en þá var klukkan á Íslandi tvö eftir miðnætti.

„Þannig að maður er vakinn svona rétt um miðnætti að íslenskum tíma. Þannig að aðalmálið er bara hreinlega að reyna að hvíla sig fyrir flug,” segir Guðlaugur.
Pílagrímaflugið þetta árið hófst þann 10. maí. Þetta er tíu vikna törn, því lýkur 23. júlí. Flugið er tvískipt. Fyrri hlutinn felst í að flytja múslima víðs vegar að úr heiminum til Sádí-Arabíu. Seinni hlutinn, eftir að þeir hafa heimsótt Mekka og aðra helga staði, felst í að flytja þá aftur heim.

Einar Blandon heldur utan um flugrekstur Atlanta í Sádí-Arabíu.
„Ég myndi segja að verkefni fyrir Saudia Airlines hafi í gegnum tíðina verið svona kjölfestan í verkefnum Air Atlanta og verið alltaf svona rauði þráðurinn í okkar starfsemi,” segir Einar sem er sviðsstjóri flugrekstrar Atlanta.
Farþegahópurinn hjá Guðlaugi flugstjóra telur að þessu sinni 449 pílagríma. Margir eru aldraðir og veikburða og því reynir mikið á flugliðana um borð.

„Þetta eru tíu tíma flug, til dæmis héðan til Indónesíu. Og það er ýmislegt sem skeður á leiðinni og ekki allt skemmtilegt. Eins og – við höfum upplifað farþega sem deyja, til dæmis,” segir Einar Sebastian Ólafsson, yfirflugþjónn hjá Air Atlanta.
Og það er krefjandi fyrir íslensku flugvirkjana að vinna í þessum mikla hita.
-Eins og í dag. Það er 43 til 44 stiga hiti. Hvernig vinnuaðstæður eru þetta?
„Þetta getur verið mjög erfitt,” svarar Rafn Þór Rafnsson, yfirflugvirki Air Atlanta í Sádí-Arabíu.

„Mjög erfitt, sérstaklega ef við förum í mótorskipti eða einhver svona stærri eða erfiðari verkefni.
En þetta bara venst. Þetta venst eins og allt annað, mundi ég segja,” svarar flugvirkinn.
Einar Blandon áætlar að Air Atlanta muni í þessari törn flytja 65 þúsund pílagríma í 140 ferðum en félagið er með tvær Boeing 747 og fjórar Boeing 777 í farþegaflutningunum.
„Vélarnar eru núna að fljúga hérna allt árið um kring. Þannig að þegar pílagrímaflugið er búið þá halda þessar vélar áfram að fljúga bara venjuleg áætlunarflug fyrir Saudia,” segir Einar.

En það er ekki aðeins að þetta sé stórt fyrir Air Atlanta. Pílagrímaflugið er án efa með stærstu verkefnum sem íslensk fyrirtæki sinna yfir höfuð á erlendum vettvangi. Íslendingar eru þó í miklum minnihluta í fjölþjóðlegum hópi starfsmanna sem sinnir verkefnum í Sádí-Arabíu.
„Núna, eins og staðan er í dag, þá erum við með hérna um og í kringum sexhundruð manns. Ég held að við séum með 450 flugfreyjur, ætli það séu ekki rétt um 80 til 100 flugmenn, flugvirkjar eru 40 til 50, og svo operations. Já, svona um eða í kringum sexhundruð manns,” segir Einar Blandon.
Hér má sjá frétt Stöðvar 2: