Evrópubikarmeistarinn skoraði tvö mörk í fjórðu deildinni Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. júní 2024 12:15 Benedikt Gunnar Óskarsson skorar eitt sautján marka sinna í bikarúrslitaleik Vals og ÍBV í vetur. vísir/hulda margrét Benedikt Gunnari Óskarssyni er greinilega fleira til lista lagt en að spila handbolta. Hann skoraði nefnilega tvö mörk í 4. deildinni í fótbolta í gær.
Benedikt átti frábært tímabil með Val sem varð bikarmeistari og vann svo EHF-bikarinn, fyrst íslenskra liða. Hann skoraði meðal annars sautján mörk í bikarúrslitaleiknum gegn ÍBV. Hinn 22 ára Benedikt hefur samið við Noregsmeistara Kolstad. Hann er þó enn hér á landi og var í leikmannahópi KH gegn Kríu í 4. deildinni í fótbolta í gær. Benedikt kom inn á 71. mínútu, þegar staðan var 2-2. Og hann var ekki lengi að láta að sér kveða. Þegar tvær mínútur voru til leiksloka kom hann KH yfir og á sjöttu mínútu í uppbótartíma skoraði hann annað mark sitt og fjórða mark Hlíðarendapilta sem unnu leikinn 4-2. KH er í 4. sæti 4. deildarinnar með þrettán stig eftir níu leiki.
Valur Olís-deild karla Íslenski boltinn Mest lesið Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Æfir íslenskuna daglega í klefanum Íslenski boltinn Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Tímataka og gamlingjagolf Sport Fyrsti dagur MÍ: Öruggt hjá Sindra og fimmtán ára vann fjögur hundrað metra hlaupið Sport „Búin að slá út ansi öflug lið“ Íslenski boltinn Lebron fer til Fíladelfíu Körfubolti Völler fer og Arsenal-hetja starfar með Klopp Fótbolti Hættir með landsliðinu Fótbolti Fleiri fréttir Æfir íslenskuna daglega í klefanum Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar „Virkilega sáttur við framlag leikmannanna“ „Bárum of mikla virðingu fyrir þeim“ Uppgjörið: Víkingur R. - Keflavík 5-1 | Engin Evrópuþynnka í Víkingum „Búin að slá út ansi öflug lið“ Taugarnar þandar í endurkomusigri Njarðvíkur Tap í fyrsta leik Söru Bjarkar fyrir Hauka síðan 2008 Uppgjörið: Þróttur - ÍBV 1-0 | Þróttarar í bikarúrslit Hetja Þróttar: „Ákvað að hoppa og vona það besta“ Elfar Árni tryggði Völsungum mikilvægan sigur á Mærudögum Afturelding kaupir Kristin Frey frá Val „Nýtt verkefni og nýr leikur“ Tvö mörk á tveimur mínútum á elleftu stundu og Grótta bjargaði stigi Skoruðu fimm í Breiðholtinu og fóru upp í annað sætið Kaupa Conteh frá Stjörnunni „Ótrúlega spennandi sóknarmaður“ Spilaði á móti Þór um síðustu helgi og var síðan lánaður til Þórs Spilar gegnum meiðsli: „Verður örugglega svolítið vont“ Gegndrepa Jón Þór bíður sólarinnar „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Eyjakonur þétta vörnina Vandræðalega slakar Valskonur: „Til skammar“ Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Uppgjörið: Valur – Breiðablik 1-7 | Hrafnhildur Ása og Agla María tættu vörn Vals í sig Uppgjörið: Fylkir – Afturelding 3-4 (1-1) | Afturelding í úrslit bikarkeppninnar í fyrsta sinn Uppgjörið: FH – Stjarnan 7-3 | FH heldur toppsætinu Sögulegur leikur fyrir Mosfellinga Pressuóðir Ísraelar í Víkinni Sjá meira