Keane bað Maguire afsökunar: „Ég fór yfir strikið“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 29. júní 2024 10:46 Harry Maguire hefur verið vinsælt skotmark álitsgjafa eins og Roys Keane. getty/Eddie Keogh Roy Keane bað Harry Maguire, leikmann Manchester United, afsökunar á að hafa gagnrýnt hann of harkalega. Írinn kvaðst hafa farið yfir strikið.
Maguire hefur reglulega verið gagnrýndur fyrir frammistöðu sína með United, meðal annars af Keane. Sá írski sér eftir sumu sem hann hefur sagt um enska landsliðsmanninn. „Ég var harður við Harry Maguire af fótboltalegum ástæðum og augljóslega fjöllum við um marga United-leiki. Hann hefur átt erfitt uppdráttar hjá United, erfiðara en með landsliðinu. Við tölum um andlega heilsu leikmanna og ég fór yfir strikið í gagnrýni minni á Maguire. Ég gerði smá grín að honum og það er ekki fallegt,“ sagði Keane í hlaðvarpinu The Overlap. „Ég spilaði leikinn og veit hversu erfitt það er en ég er líka nógu stór til að viðurkenna mistök. Ég rakst á Harry fyrir nokkrum mánuðum og bað hann afsökunar. Stundum verður okkur álitsgjöfunum á í messunni og ef þetta verður persónulegt ertu farinn yfir strikið.“ Maguire og Keane eiga það sameiginlegt að hafa borið fyrirliðabandið hjá United. Það var hins vegar tekið af Maguire síðasta sumar. Maguire þótti leika ágætlega með United á síðasta tímabili en meiddist undir lok þess og var ekki í enska EM-hópnum.
Enski boltinn Mest lesið Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ Fótbolti „Ég trúi þessu eiginlega ekki enn þá“ Fótbolti Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Enski boltinn Tímabilinu lokið hjá Elíasi sem sótti að markametinu Íslenski boltinn Klopp um flugferðina þegar hann ætlaði að fá Mbappé til Liverpool Fótbolti Aftur var Arsenal-maðurinn Merino hetja Spánverja Fótbolti Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Körfubolti N1-mótið: Jötunn sem þambar mjólk, frábær tilþrif og orðljótir mótherjar Fótbolti Lögregla kölluð til í fjölmiðlaaðstöðu enska landsliðsins Fótbolti Sjáðu ótrúlega fimmu Ídu Marínar og Fram vinna meistarana Íslenski boltinn Fleiri fréttir Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Sjá meira