Auk Chilima voru um borð í vélinni fyrrverandi forsetafrú landsins, Shanil Dzimbiri, og þrír hermenn. Vélin var á leið til Mzuzu sem er í um klukkustundar fjarlægð frá Lilongwe.
Brak flugvélarinnar fannst í dag en hún hvarf af ratsjá eftir að hún tók á loft frá flugvelli höfuðborgar Malaví, Lilongwe, í gærmorgun. Forseti Malaví, Lazarus Chakwera, sagði í sjónvarpsávarpi í gær að ekki hefði verið hægt að lenda vélinni vegna lélegs skyggnis og veðurs. Flugmanninum hafi verið sagt að snúa aftur og að aðeins nokkrum mínútum síðar hafi flugvélin horfið af ratsjá.
Í miklum samskiptum við Chilima
„Varaforsetinn sem fórst var sá sem tók á móti mér og sendinefndinni frá Íslandi. Hann var þátttakandi í dagskránni sem hafði verið skipulögð fyrir mig út af þessari opinberu heimsókn,“ segir Bjarni í samtali við fréttastofu.
Hann og Chilima hafi báðir verið viðstaddir mannfjöldaráðstefnu og þeir átt fund saman með forseta landsins, Chakwera Þá hafi Chilima líka verið gestur í kvöldverðarboði þar sem menning beggja landa í mat og tónlist var kynnt.
„Svo fylgdi hann mér upp á flugvöll. Við vorum þannig í talsverðu sambandi á meðan heimsókninni stóð,“ segir Bjarni.
Á meðan Bjarni var í Malaví heimsótti hann Mangochi-hérað þar sem Ísland hefur verið í þróunarsamvinnu síðustu 35 árin. Með honum voru aðrir ráðherrar í ríkisstjórn Malaví.
„Við fórum til Mangochi-héraðs í þessari sömu vél. Herinn á þessa vél og hún var staðsett í Lilongwe þegar við vorum þar og þeir lögðu okkur til vélina til að fara fram og til baka. Í vélinni voru tveir ráðherrar og fleira fólk. Svo kemur bara í ljós núna þega þessi hörmulegi atburður verður að þetta er sama herflugvélin og ég var að ferðast með.“
Er það ekki skrítin tilfinning?
„Það er mjög óhugnanleg og óþægileg tilfinning, og ekki síst strax í kjölfar þess að ég er kominn heim að svona hörmulegur og sorglegur atburður eigi sér stað í sömu vél og við vorum að nota á meðan við vorum þar.“
Hafði ekki áhyggjur í vélinni
Hann segist ekki hafa haft neinar áhyggjur af vélinni þegar hann ferðaðist með henni, honum hafi liðið vel í henni.
„Ég hef sent bréf á eftirlifandi eiginkonu hans og forseta landsins,“ segir Bjarni að lokum.
Bjarni fór í opinbera heimsókn til Malaví í maí. Þar tók Chilima á móti Bjarna á flugvellinum. Ferð Bjarna vakti athygli í afrískum fjölmiðlum vegna ferðamáta hans. Hann kom með farþegaflugi og var sagður lítillátur í samanburði við forseta Kenía sem hafði nýlega farið í opinbera heimsókn til Bandaríkjanna í rándýrri einkaflugvél.