Skoðun

Það á að kjósa með Exi

Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar

Sko bókstafnum X ekki með verkfærinu sem er notað til að höggva við, axarsköft eru bönnuð eins og að gera hjarta, broskarl, semja stöku eða strika yfir aðra frambjóðendur, bara eitt nett X á seðillinn TAKK.

Það er bannað að taka mynd af kjörseðlinum og birta á netmiðlun á kjördag, það kallast kosningaáróður á kjörstað en það er alveg bannað.

Vonandi mæta ungir sem aldnir, þið unga fólkið okkar endilega nýta kosningaréttinn þó ekki væri nema að máta sig við hvernig þetta gengur fyrir sig.

Allir ættu að skoða hvern frambjóðanda fyrir sig og hugsa hvort við viljum heyra og sjá þennan einstakling við öll hugsanleg og óhugsanleg tækifæri næstu fjögur árin eða svo.

Það er að mörgu að hyggja, hvað þarf forseti að hafa til að bera?

Vera mælskur, kunna að koma fyrir sig orði?

Vera glæsilegur og þjóðinni til sóma innlends sem erlendis?

Vera sameiningartákn og stoð í gleði sem og sorg?

Vera höfðinglegur, einhver til að líta upp til?

Vera hlutlaus?

Vera skemmtilegur?

Vera hugrakkur og djarfur þegar á reynir?

Þetta mælir hvorki með né á móti frambjóðendunum tólf og útilokar engan þeirra, því föngulegan hóp af hæfu, góðu og glæsilegu fólki höfum við úr að velja, þetta er okkar lúxusvandamál.

En það eru 12 í framboði ekki bara þessi sex sem birtast oftast á skjánum því þau eiga nóg af peningum og fjölmiðlar hampa þeim óspart.

Hinir sex má sjá hér og mæli ég með að þið skoðið þeirra framboð vel.

Forsetaframbjóðendurnir Ásdís Rán Gunnarsdóttir, Ástþór Magnússon, Helga Þórisdóttir, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir og Viktor Þórisson, sem kalla sig Meistaradeildina, halda sameiginlegan framboðsfund og kvöldvöku í Kolaportinu. Samstöðin sendir beint út frá fundinum á venjulegum útsendingartíma Rauða borðsins. Fundarstjóri er Margrét Örnólfsdóttir.

Ég ætla ekki að segja ykkur hvern þið eigið að kjósa né hvern á ekki að kjósa, ég ætla ekki heldur að segja ykkur hvað ég ætla eða ætla ekki að kjósa, því ég vil ekki hafa áhrif á annara val.

Þetta er ykkar val, látið kannanir, fjölmiðla, ættingja og síst af öllu mig hafa áhrif á ykkar val, kynnið ykkur málin, ræðið þau og veltið þeim fyrir ykkur, mátið þá við Bessastaði.

Þegar í kjörklefann kemur lesið öll nöfnin 12, gefið ykkur tíma áður en þið veljið, þetta er ykkar val og engin sér hvað þið völduð.

Munið að kjósa með hjartanu, NEI ég meina X

"Öllu gríni fylgir einhver ánægja" eins og sagt var við mig um árið á Flateyri.

Tylft fram sýna krafta bauð

Þjóðinni úr að velja

Stefnur sínar saman sauð

Og kosti upp að telja

Milli þeirra uppúr sauð

Upphófust skítköst nokkur

Umræðan frekar snauð

lítið hjálpar okkur

Höfundur er virkur í skoðanakönnunum




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×