Vill sjá leiðtoga á Norðurlöndunum en ekki aumingja og gungur Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 28. maí 2024 14:16 Dr. Gilbert sagði að skelfingarástandið á Gasa, sem hefur nú varað í fleiri mánuði, til marks um fullkomið niðurbrot alþjóðakerfisins. Vísir/Arnar Dr. Mads Gilbert, heimsþekktur norskur læknir sem hefur unnið í fleiri áratugi á Gasa, á þá von í brjósti að stjórnvöld á Íslandi og í Noregi taki höndum saman og þrýsti með þýðingarmiklum hætti á stjórnvöld í Ísrael.
Hann segir afstöðu stjórnvalda annars vegar til framgöngu Rússa og hins vegar til framgöngu Ísraels vera tvískinnung og að nú verði þau að breyta um kúrs ef þau vilji ekki vera samsek Ísrael og taka upp viðskiptaþvinganir. Fréttamaður hitti Dr. Gilbert í Grjótaþorpinu í gær en hann er staddur hér á landi á vegum félagsins Ísland-Palestína. Hann hélt í gærkvöldi fyrirlestur í Háskólabíói um stöðuna á Gasa en heldur síðan norður til Akureyrar til að halda annan fyrirlestur í menningarhúsinu Hofi en hann er á dagskrá á morgun. Dr. Gilbert reyndi að komast inn á Gasa eftir 7. október til að hjálpa óbreyttum borgurum en Ísraelsmenn hleyptu honum ekki inn. Hann sagði að fréttamaður þyrfti að spyrja stjórnvöld í Ísrael um ástæðuna en hann sjálfur telur að þau vilji ekki hafa fólk á Gasa sem muni segja frá því sem fyrir augu ber og vísar í þann fjölda blaðamanna sem hafa verið drepnir á Gasa. Svelt til bana Dr. Gilbert sagði að skelfingarástandið á Gasa, sem hefur nú varað í fleiri mánuði, til marks um fullkomið niðurbrot alþjóðakerfisins og þau öryggisnet sem byggð eru inn í kerfin til að grípa óbreytta borgara hafi augljóslega ekki haldið. Dr. Gilbert finnst stjórnvöld á Norðurlöndunum ekki hafa verið nálægt nógu afdráttarlaus gagnvart stjórnvöldum í Ísrael og að sú afstaða endurspegli ekki vilja íbúanna.Vísir/Arnar „Fólk er svelt til bana. Það hefur ekkert vatn, það fær ekki læknishjálp. Þeir hafa sprengt og eyðilagt spítala og allt heilbrigðiskerfið á Gasa. Árið 2024? Með stuðningi ESB og Bandaríkjanna? Hvað er þetta? Þetta er gríðarlegur siðferðisbrestur fyrir Vesturlönd og okkur öll. Þetta er árás á öryggi okkar og varnir sem óbreyttra borgara frá alþjóðasamfélaginu eins og það er skilgreint af Sameinuðu þjóðunum. Þetta er algjörlega hrunið.“ Að minnsta kosti fimmtíu Gasabúar voru drepnir í árás Ísraelshers á tjaldbúðir í Rafah-borg á sunnudag þar sem eldur kviknaði og um tvö hundruð særðust. „Mörg þeirra brunnu til bana. Hvað er þetta? Börn, konur, barnshafandi konur, aldraðir og sjúklingar. Þeim er slátrað dag eftir dag.“ Líkt og greint var frá í upphafi er Dr. Gilbert Norðmaður en Noregur, Spánn og Írland tilkynntu fyrir helgi að þau hygðust viðurkenna Palestínu sem sjálfstætt ríki en hvaða þýðingu hefur það? „Það gleður mig að vera á Íslandi sem var fyrsta norræna ríkið og eitt af þeim fyrstu í heiminum til að viðurkenna Palestínu sem ríki. Ég tel það hafa pólitíska þýðingu en þetta verður að hafa eftirfylgni.“ Hann var þá hugmynd undir utanríkismálanefnd þingsins í gær um að Ísland og Noregur hefðu „norrænt frumkvæði“ í því að beita stjórnvöld í Ísrael alvöru þrýstingi. „Ég vona að íslensk stjórnvöld hafi samband við norsk stjórnvöld til að eiga þetta norræna frumkvæði til að koma á tafarlausu vopnahléi og tafarlausri opnun Gasa, því ef við gerum það ekki erum við samsek.“ Dr. Gilbert finnst stjórnvöld á Norðurlöndunum ekki hafa verið nálægt nógu afdráttarlaus gagnvart stjórnvöldum í Ísrael og að sú afstaða endurspegli ekki vilja íbúanna. „Ég held að almenningur á Norðurlöndunum, sérstaklega í Noregi og á Íslandi, hafi talað mjög skýrt. Sjáið bara þátttökuna í mótmælum, sjáið skoðanakannanirnar. Meirihluti Norðmanna vildi reka Ísrael úr Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva og þannig sniðganga það. Stjórnvöld verða að vera samstíga almenningi. Þau verða að endurspegla skoðanir og vilja fólksins og hafa forystu en ekki vera aumingja og gungur sem hlýða utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna og Pentagon í því hvað þau segja og meina.“
Palestína Átök í Ísrael og Palestínu Ísrael Noregur Írland Spánn Tengdar fréttir Yfirmaður ísraelsku leyniþjónustunnar sagður hafa hótað saksóknara Alþjóðasakamáladómstólsins Fyrrverandi yfirmaður ísraelsku leyniþjónustunnar, Yossi Cohen, reyndi á nokkrum leynilegum fundum að þrýsta á aðalsaksóknara Alþjóðasakamáladómstólsins, Fatou Bensouda, að falla frá því að rannsaka Ísrael fyrir stríðsglæpi. 28. maí 2024 08:21 Hryllingur í Rafah eftir hefndaraðgerðir Að minnsta kosti 35 voru drepnir í árásum Ísraela á Rafah-borg í suður-Gaza. Loftárásirnar eru hefndaraðgerðir Ísraela eftir að Hamas-samtökin gerðu fyrstu eldflaugaárásir síðan í janúar á Tel Aviv í morgun. Myndbönd á samfélagsmiðlum sýna mikinn hrylling. 26. maí 2024 22:41 Yazan bíður enn svara Algjör óvissa er enn í máli tólf ára palestínsks drengs, með hrörnunarsjúkdóm, sem senda á úr landi. Tæpar þrjár vikur eru síðan stoðdeild ríkislögreglustjóra heimsótti drenginn og foreldra hans til að undirbúa brottflutning en óskað hefur verið eftir endurupptöku málsins. 26. maí 2024 15:01 Mest lesið Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Háttsettur sænskur diplómati handtekinn fyrir njósnir Erlent Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Innlent Fá engar bætur fyrir stolin bíl Innlent Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Innlent Hjörtur Torfason er látinn Innlent „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Innlent „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Innlent Tilkynnti um stolið hjól og réðst svo á þjófinn Innlent Gjörunnin matvæli tæpur helmingur af orkuinntöku landsmanna Innlent Fleiri fréttir Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Hjörtur Torfason er látinn Fá engar bætur fyrir stolin bíl „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Syndir 1.600 kílómetra í kringum landið: Borðar tíu þúsund kalóríur á dag fyrir svaðilförina Ekkert fundist af báti sem sagður er hafa hvolft Gjörunnin matvæli tæpur helmingur af orkuinntöku landsmanna Tilkynnti um stolið hjól og réðst svo á þjófinn „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Máttu skikka nemanda í tvö sjúkrapróf samdægurs Njósnari sér að sér og synt í kring um Ísland Vill deila þekkingu á jarðvarma með Úkraínu Bað forseta að taka „stjórnarliða á skólabekk og tukta þá til“ Sjö ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps Blindir vilja Hljóðbókasafnið heim Stjórnarandstaða kvartar undan starfi í velferðarnefnd Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Úlfar hættir sem lögreglustjóri Ráðherra hafnaði loftslagsrannsókn vegna ófullnægjandi lagaramma Hafnar því alfarið að hafa lekið gögnunum Nú má heita Gúníta Ljósynja Dawn Fólk varað við aukinni hættu á gróðureld Sala á Íslandsbankabréfum hafin og Jón Óttar sakar Ólaf Þór um leka Rannsóknarleyfi Rastar hafnað Telur víst að gögnin hafi komið frá sérstökum sjálfum Miðhúsabraut lokuð eftir að ekið var á vegfaranda á hlaupahjóli Yfir þrjú hunduð eftirskjálftar Mál Oscars sé barnaverndarmál en ekki útlendingamál Sjá meira
Yfirmaður ísraelsku leyniþjónustunnar sagður hafa hótað saksóknara Alþjóðasakamáladómstólsins Fyrrverandi yfirmaður ísraelsku leyniþjónustunnar, Yossi Cohen, reyndi á nokkrum leynilegum fundum að þrýsta á aðalsaksóknara Alþjóðasakamáladómstólsins, Fatou Bensouda, að falla frá því að rannsaka Ísrael fyrir stríðsglæpi. 28. maí 2024 08:21
Hryllingur í Rafah eftir hefndaraðgerðir Að minnsta kosti 35 voru drepnir í árásum Ísraela á Rafah-borg í suður-Gaza. Loftárásirnar eru hefndaraðgerðir Ísraela eftir að Hamas-samtökin gerðu fyrstu eldflaugaárásir síðan í janúar á Tel Aviv í morgun. Myndbönd á samfélagsmiðlum sýna mikinn hrylling. 26. maí 2024 22:41
Yazan bíður enn svara Algjör óvissa er enn í máli tólf ára palestínsks drengs, með hrörnunarsjúkdóm, sem senda á úr landi. Tæpar þrjár vikur eru síðan stoðdeild ríkislögreglustjóra heimsótti drenginn og foreldra hans til að undirbúa brottflutning en óskað hefur verið eftir endurupptöku málsins. 26. maí 2024 15:01