Skoðun

Baldur í þágu mann­úðar og sam­fé­lags

Anna María Gunnarsdóttir skrifar

Þeir dagar koma sem ég forðast að hlusta á fréttir. Ég treysti mér ekki til að hlusta á fréttir og hugsa um hvaða áhrif hugsanleg endurkoma Trumps mun hafa á veraldarsamfélagið, hver áhrif Pútíns eru á sjálfstæð ríki sem hafa ekki ráðið sér sjálf nema um skamma hríð, hljóm hræðilegra frétta frá Gaza og svo mætti lengur telja. Hvað með mannskilning, grunnvatnið, hlýnun jarðar og viðkvæma stöðu Íslands í heiminum; smáríkis út í miðju Atlantshafi. Ég var því ákaflega glöð að heyra að Baldur Þórhallsson byði sig fram til forseta Íslands. Það var þá ein frábær frétt þann daginn.

Baldur Þórhallsson er búinn frábærum kostum sem gera hann ákaflega hæfan til að gegna embætti forseta Íslands. Baldur þekkir flestum betur betur til íslenska stjórnkerfisins og utanríkisstefnu Íslands. Hann hefur um árabil rannsakað stöðu smáríkja í Evrópu og möguleika þeirra til áhrifa í samfélagi þjóðanna ásamt því að endurreisa og stýra Alþjóðastofnun Háskóla Íslands. Hann hefur kennt, sinnt rannsóknum og stjórnun við Háskóla Íslands um árabil og er alvanur að leiða saman ólík sjónarmið og vinna með fólki.

Baldur hefur greint frá því að mannréttindi og líðan barna séu honum hugleikinn og ég trúi að þar verði hann æsku Íslands, landsins besti fulltrúi. Það er nefnilega ekki nóg að segjast vera öldungis fordómalaus og nútímalegur í hugsun. Hver einasta manneskja sem sem hefur þurft að átta sig á sjálfri sér í heimi sem er óumræðilega flóknari en hin hefðbundna kynja- og kynhvatartvíhyggja segir til um, hefur um leið þurft að takast á við sjálfa sig og umheiminn og koma berskjölduð fram. Ég treysti því Baldri ákaflega vel til að vera málsvari þeirra sem eiga á brattann að sækja ekki síst barna og ungmenna. Baldur mun hann vinna gegn hættulegum staðalmyndum og fordómum.

Meginhlutverk íslensks samfélags er að hlúa að börnum og unglingum, styðja þau áfram til andlegs og vitsmunalegs þroska, stuðla að víðsýni og tryggja þeim nám við hæfi. Ég er þess fullviss að Baldur verður forseti sem vinnu í þágu menntunar, mannúðar og samfélags, börnum og ungmennum, síðast en ekki síst Íslandi til heilla.

Höfundur er aðstoðarskólameistari.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×