Báðir þjálfarar Skallagrímsliðsins hætta Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. maí 2024 16:31 Atli Aðalsteinsson hefur stýrt Skallagrímsliðinu í síðasta skiptið í bili. Skallagrímur Körfubolti Atli Aðalsteinsson mun ekki endurnýja samning sinn sem þjálfari karlaliðs Skallagríms í körfuboltanum og aðstoðarmaður hans Hafþór Ingi Gunnarsson er einnig á förum.
Skallagrímur datt út í átta liða úrslitum úrslitakeppni 1. deildar karla á móti Þórsurum á dögunum en einvígið fór alla leið í oddaleik. Skallagrímur vann ellefu leiki og tapaði ellefu leikjum í deildarkeppninni í vetur. Liðið var síðan tuttugu stigum yfir í oddaleiknum á móti Þór fyrir norðan en tapaði leiknum á endanum í framlengingu. Hafþór Ingi gaf þetta út á lokahófi Körfuknattleiksdeildar Skallagríms og var honum þar klappað vel í lófa og þakkað fyrir hans framlag og vinnu, bæði sem aðstoðarþjálfari meistaraflokksins og sem þjálfari Ungmennaflokks karla. Í dag tilkynnti Körfuknattleiksdeild Skallagríms svo að hún og Atli Aðalsteinsson hafa komist að samkomulagi um að endurnýja ekki samninginn þeirra á milli en samningurinn við Atla rann út eftir tímabilið. Stjórnin notaði tækifærið í frétt á miðlum Skallagríms, þakkaði Atla fyrir ómetanlegar stundir á undanförnum árum og óskaði honum velfarnaðar í framtíðinni. Atli hefur þjálfað meistaraflokksliðið síðan 2019 eða í fjögur tímabil. Hann fór meðal annars með liðið í oddaleik gegn Hamri um að fara upp í Subway deildinni á síðasta tímabili. Atli var einnig aðstoðarþjálfari kvennaliðs Skallagríms þegar þær lönduðu bikarmeistaratitlinum undir stjórn Guðrúnar Óskar Ámundadóttur.
Skallagrímur Mest lesið Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Marlena vann Bakgarðshlaupið: „Ég hljóp bara“ Sport Fær sér ís í heita pottinum eftir tæplega 250 kílómetra hlaup Sport Haaland kastaði boltanum í hnakkann á Gabriel eftir jöfnunarmark City Fótbolti Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Enski boltinn Sér eftir að hafa valið Val fram yfir KR Íslenski boltinn Keane segir Arteta að taka lyfin sín Enski boltinn BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Enski boltinn Marlena er sigurvegari Bakgarðshlaupsins Sport Clark slegin í augað í frumraun Körfubolti Fleiri fréttir Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Sjá meira