Öryggismiðstöðin metin á 3,8 milljarða í kaupum VEX á nærri helmingshlut
![Trausti Jónsson og Benedikt Ólafsson, stofnendur VEX.](https://www.visir.is/i/363B19C66BA6474D9E2BF27DC1D090BFE4466B1A30980E335DC4F4F86388E3E5_713x0.jpg)
Þegar framtakssjóðurinn VEX gekk frá kaupum á samtals um 45 prósenta hlut í Öryggismiðstöðinni um mitt árið í fyrra af breiðum hópi fjárfesta þá var allt hlutafé fyrirtækisins verðmetið á liðlega 3,8 milljarða í viðskiptunum. Sjóðurinn stóð einnig að fjárfestingu fyrir meira en 1,6 milljarða í bandaríska skyrframleiðandanum Icelandic Provision á liðnu ári sem tryggði honum yfir tíu prósenta hlut í félaginu.