Erlent

Sánchez í­hugar að segja af sér vegna meintrar spillingar

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Sánchez hefur setið í embætti frá árinu 2018. 
Sánchez hefur setið í embætti frá árinu 2018.  EPA

Pedro Sánchez, forsætisráðherra Spánar og formaður Sósíalistaflokksins, hefur aflýst öllum opinberum störfum sínum út vikuna og segist íhuga að segja af sér. Ástæðuna segir hann vera eineltismál sem hann og konan hans sæti vegna meints spillingarmáls sem eigi ekki við rök að styðjast. 

Í frétt The Guardian um málið segir að dómur í Madríd hafi ákveðið að hefja rannsókn á fyrirtæki Begoña Gómez, eiginkonu Sánchez, vegna meintrar spillingar og tilraunar til að nýta eigin stöðu til hagsbóta. 

Sánchez birti í færslu á X í gær þar sem hamm segir allar ásakanir á hendur Gómez sem varða spillingu rógburð. Ásakanirnar hafi leitt til þess að hann íhugi nú alvarlega að segja af sér. Hann segist ætla að opinbera ákvörðun sína á mánudaginn. 

Tilkynningin kom nokkrum klukkustundum eftir að rannsókn á viðskiptaháttum Gómez var opnuð í kjölfar kvörtunar sem þrýstihópurinn Manos Limpias (Hreinar hendur) lagði fram. Hópurinn hefur tengingar við öfgahægrivæng stjórnmála á Spáni. 

Í færslunni á X segir Sánchez kvörtunina byggða á fréttaumfjöllun fjölmiðla sem hneigjast til öfgahægrisins. 

„Eðli málsins samkvæmt mun Begoña verja heiður sinn og hún kemur til með að vinna með réttarkerfinu eins og unnt er til þess að afsanna þær staðreyndir sem fram hafa komið og eru jafn hneykslislegar í útliti og þær eru engar,“ sagði Sánchez á X.

Þá sakaði hann pólitísku andstæðinga sína, Alberto Núñez Feijóo, formann íhaldsflokksins PP, og Santiago Abascal, formann öfgahægri-flokksins Vox um samsæri með þrýstihópnum. Tilhæfulaus tilraun þeirra til að steypa honum af stóli með því að ráðast að konu hans væri ekkert annað en einelti og áreiti. 

Eins og áður segir ætlar hann að ávarpa þjóðina á mánudag og greina frá ákvörðun sinni um hvort hann ætli að segja af sér eða ekki. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×