Svart er það og yfirgangur mikill Magnús Guðmundsson skrifar 19. apríl 2024 14:00 Nú hefur MAST gefið út fyrsta nýja rekstrarleyfið eftir að strandsvæðaskipulagið var samþykkt í mars 2023. Strandsvæðaskipulagið tók tæp fjögur ár í vinnslu. Skipulagið uppfyllir ekki siglingaöryggi, vitalög, fiskeldislög, reglugerð um sjókvíaeldi, náttúruverndar- og umhverfislög, byggingareglugerð, ofanflóðalög svo ekki sé talað um lög um fjarskiptastrengi, sem er þjóðaröryggismál. Það eru örugglega einhver lög óupptalin og við höfum alþjóðlegar skuldbindingar gangnvart mörgum þessara laga. Náttúran við Sandeyri í Ísafjarðardjúpi skal víkja, því seiði fyrrverandi bæjarstjóra Ísafjarðar, nú framkvæmdastjóra hjá Arctic Sea Farm hf (ASF) eru að skemmast. Yfirgangur fyrirtækisins er það mikill að baujur, kvíar og prammi eru nú þegar komin á svæðið þrátt fyrir að ámælisvert rekstrarleyfi hafi ekki tekið gildi og er í kæruferli hjá Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála. Það vantaði mikið uppá að rekstrarleyfið væri rétt þegar það var gefið út þann 29. febrúar 2024. Hnit eldissvæðisins voru ólöglega inni í landareign Sandeyrar. Hvað gerist næst? Þá fara póstar og bréf að ganga á milli ASF og lögfræðings MAST, sem endar þannig að hnit svæðisins eru færð fjær landi og svæðið stækkað þannig að það fer út fyrir nýtingarsvæði strandsvæðaskipulagsins. Það er ólöglegt. Nú kann einhver að hugsa, var kærufrestur ekki framlengdur. Svarið er nei, kærufrestur til 29. mars 2024 skal standa þrátt fyrir breytingar á rekstarleyfi. Réttur landeiganda á Sandeyri var vanvirtur. Hann hafði mjög stuttan tíma til að bregðast við öllum breytingum sem urðu á rekstarleyfinu í póstsamskiptum ASF og MAST. Það eru tvö önnur svæði inni í þessu rekstrarleyfi ASF. Krikjusundssvæðið er rétt norðan við Vigur. Það er alfarið inni í leiðarmerki, hvítu ljósi frá Óshólavita og að hluta til í Arnarnesvita. Arnarnessvæðið er að stærstum hluta inni í hvítu ljósi Æðeyjarvita ásamt Óshólavita. Fyrst að MAST gaf út rekstrarleyfi til ASF í Djúpinu er greinilegt að engin ríkisstofnun ætlar að virða vitalögin. Það skal tekið fram að áhættumat siglinga fyrir Djúpið er unnið af Vegagerðinni, Samgöngustofu og Landhelgisgæslu. Vegagerðin fer með lög um vitamál. 4. grein vitalaganna er svohljóðandi. "Óheimilt er að byggja hús eða mannvirki sem skyggt gætu á leiðarmerki frá sjónum á þeim boga sjóndeildarhringsins þar sem því er ætlað að þjóna sjófarendum, og hæfilega langt til beggja handa. Getur [Vegagerðin] 1) látið rífa húsið eða mannvirkið á kostnað eiganda þess ef brotið er á móti þessu. Óheimilt er að setja upp ljós eða önnur merki sem kynnu að villa um fyrir sjófarendum. " Lög og reglugerðir eiga að duga til að stöðva sjókvíaeldi ef ríkisstofnanir og stjórnsýslan öll virða eigin lög og reglur. Náttúruverndarfólk með lögfræðinga í broddi fylkingar hafa setið marga fundi með stjórnendum og lögfræðingum ríkisstofnana. Þær hafa m.a. verið Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Vegagerðin, Skipulagsstofnun, Landhelgisgæslan, Matvælastofnun, Umhverfisstofnun og Samgöngustofa. Það hefur verið erfitt að fá skýr og greinargóð svör hjá þeim. Þau vita öll að lög eru brotin hvert sem litið er í strandsvæðaskipulaginu, siglingaáhættumatinu og leyfisveitingaferlinu öllu. Það treystir sér enginn til að standa í báðar lappir og segja stopp, þetta er lögbrot, þetta má ekki, þetta gengur ekki lengur. Það þarf nýtt skipulag þar sem öruggar siglingaleiðir eru settar í algeran forgang og hagsmunir umhverfis, náttúru, vistkerfis, íbúalýðræðis og annarrar starfssemi en sjókvíaeldis eru virt. Öryggi siglinga í Djúpinu má ekki enda þannig að það sé t.d. ekki fært meðfram Óshlíð eða fyrir Arnarnes fyrir eldissvæðum, ef íbúar innar í Djúpinu þurfa aðstoð vegna náttúruvár, vonskuveðurs eða ófærðar á vegum. Að öllu framangreindu er mjög undarlegt að heyra ekkert frá SFS hvað varðar öruggar siglingar og öryggi sjófarenda og farms. Ég ætla ekki af hafa þetta lengra í bili, en þetta leiðinlega, subbulega og langdræga partí er búið að standa í 5 ár ef miðað er við fyrsta fund strandsvæðaskipulagsvinnunnar þann 1. apríl 2019. Náttúruverndarsamtök ætla samt ekki að yfirgefa partíið fyrr en gestgjafarnir hafa tekið til á sínu borði. Svo er það bara spurning. Hver verður fyrstur til að gyrða sig í brók? Saga sjókvíaeldisins er sannsöguleg glæpasaga, sem kemur út í mörgum bindum. Höfundur er brottfluttur Seyðfirðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Magnús Guðmundsson Mest lesið Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson Skoðun Halldór 29.08.26 Halldór Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson Skoðun Skoðun Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff skrifar Sjá meira
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar