Hann bætist þar í hóp með þeim Inga Birni Albertssyni (1983), Guðmundi Steinssyni (1993), Tryggva Guðmundssyni (2008), Atla Viðari Björnssyni (2015) og Steven Lennon (2022).
Patrick gæti náð nokkrum metum á næstunni haldi hann áfram að raða inn mörkum fyrir Valsmenn.
Valsliðið er fullt af leikmönnum sem ættu að geta fundið Patrick í vítateignum og það er því allt eins líklegt að mörkin verði talin í tugum hjá honum í sumar.
Hvort að hann verði sá fyrsti til að skora tuttugu mörk á einu tímabili er allt of snemmt að segja en hann ætti að fá leikina og færin til þess.
Þangað til að hann kemst í færi við markametið á einu tímabili í efstu deild þá gæti hann hafa tryggt sér önnur met.
Hér fyrir neðan má sjá metin sem Patrick Pedersen ógnar í íslenska fótboltanum.

- Vantar 1 mark til að jafna
- Flest mörk erlends leikmanns í efstu deild á Íslandi
- (Steven Lennon 101 mark)
- -
- Vantar 9 mörk til að jafna
- Flest mörk fyrir Val í efstu deild
- (Ingi Björn Albersson 109 mörk)
- -
- Vantar 13 mörk til að jafna
- Flest mörk fyrir eitt félag í efstu deild á Íslandi
- (Atli Viðar Björnsson 113 mörk fyrir FH)
- -
- Vantar 31 mark til að jafna
- Flest mörk í efstu deild á Íslandi
- (Tryggvi Guðmundsson 131 mark fyrir ÍBV, KR, FH og Fylki)
- -
- Vantar 3 þrennur til að jafna
- Flestar þrennur í efstu deild á Íslandi
- (Hermann Gunnarsson 9 þrennur fyrir Val og ÍBA)