Lífið

Hlær að sögu­sögnunum um eigin ó­léttu í Eyja­hafi

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Una Sighvatsdóttir, sérfræðingur embættis forseta Íslands.
Una Sighvatsdóttir, sérfræðingur embættis forseta Íslands. Vísir/Egill

Una Sighvatsdóttir sérfræðingur embættis forseta Íslands fagnaði 39 ára afmæli á Santorini í Grikklandi. Hún segir afmælisárið hafa rammast kaldhæðnislega inn, hafist með því að hún hafi hætt við að gefa sjálfri sér eggheimtu-og frystingu í 38 ára afmælisgjöf og endað þannig að henni hafi borist sögur frá ókunnugu fólki utan úr bæ um að hún væri ólétt.

Una ræðir málið í einlægri færslu á samfélagsmiðlinum Facebook. Una á langan feril að fjölmiðlum að baki, starfað á Morgunblaðinu, á Stöð 2 og starfað sem sérfræðingur fyrir NATO í Georgíu. Una segist fyrst hafa komið til Santorini þegar hún var átján ára gömul í útskriftarferð í MR.

„Ég man eftir að hafa ranglað um hvítmálaðar göturnar og efast um hvort ég yrði nokkurn tíma manneskja sem hefði tök eða ráð á að dvelja á slíkum stað á eigin vegum í framtíðinni. Rúmum 20 árum síðar hélt ég í gær upp á 39 ára afmælið mitt hér á Santorini, einmitt með þeim hætti sem mér finnst skemmtilegast: Tvöfaldri köfun í kristaltærum sjó.“

Una segist daginn áður hafa gengið tíu kílómetra meðfram gígbarminum á ægifagri eldfjallaeyjunni og gapað yfir útsýninu. Í dag ætlaði hún í kayakróður að skoða nokkra hella en hafstraumar hamla því þannig hún hyggst eyða deginum í að slappa af á sundlaugarbakkanum.

Má vel hlæja að sögusögnunum

„Hið liðna afmælisár rammaðist annars svolítið kaldhæðnislega inn. Það hófst með því fyrir ári síðan að ég ákvað að hætta við að gefa sjálfri mér eggheimtu- og frystingu í 38 ára afmælisgjöf,“ skrifar Una.

Hún segist hafa komist að þeirri niðurstöðu eftir vandlega íhugun jafnvel þó algrímið oti því linnulaust að barnlausum konum á hennar aldri. Sig langi að gera margt annað við tíma sinn og pening.

„En svo þegar 39 ára afmælið nálgaðist bárust mér þær sögur frá ókunnugu fólki utan úr bæ að ég væri orðin ólétt. Sem ég er alls ekki og geri sumsé ekki ráð fyrir að verða nokkurn tíma. En það má vel hlæja að þessu. Það geri ég allavega hér á Santorini og sendi hlýja kveðju úr Eyjahafi til ykkar allra sem hugsuðuð til mín á afmælinu. Takk fyrir mig.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.