FH sótti ekki gull í greipar Eyjamanna og toppbaráttan lifir enn góðu lífi Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 22. mars 2024 21:30 Elmar Erlingsson er stemningsmaður mikill. Vísir/Hulda Margrét Alls fóru fjórir leikir fram í Olís deild karla í handbolta í kvöld. ÍBV lagði topplið FH í Vestmannaeyjum, Fram vann HK örugglega, Stjarnan lagði Selfoss og Afturelding sótti sigur á Seltjarnarnesi.
Í Vestmannaeyjum var topplið FH í heimsókn. Fór það svo að Eyjamenn unnu fjögurra marka sigur, lokatölur 32-28. Elmar Erlingsson fór hamförum í liði ÍBV, skoraði hann 9 mörk. Þar á eftir kom Daniel Esteves Vieira með 7 mörk úr aðeins 9 skotum. Petar Jokanovic varði 16 skot í markinu og var með 50 prósent hlutfallsmarkvörslu. Hjá FH var Einar Bragi Aðalsteinsson markahæstur með 5 mörk og Daníel Freyr Andrésson varði 15 skot í markinu. FH er sem fyrr á toppnum með 33 stig, þremur á undan Val þegar öll lið hafa leikið 19 af 22 leikjum. ÍBV er í 4. sæti með 24 stig. HK tók á móti Fram í leik sem gestirnir unnu með níu marka mun, lokatölur 26-35. Stjarnan vann Selfoss í heldur rólegum leik, lokatölur í Garðabæ 24-19. Á Seltjarnarnesi var Afturelding í heimsókn. Þar unnu gestirnir tveggja marka sigur, lokatölur 27-29. Stöðuna í deildinni má finna á vefsíðu HSÍ.
Handbolti Olís-deild karla Mest lesið Litu niður í þjóðsöngnum og tóku ekki í hendur Ísraela Fótbolti Ísrael - Írland 0-3 | Lærisveinar Heimis tóku Ísrael í bakaríið Fótbolti Hætti keppni á heimsmeistaramóti þrátt fyrir góðan undirbúning Sport Fengu tvö rauð spjöld fyrir hártog á tuttugu mínútum Fótbolti Albert ekki meira með íslenska landsliðinu Fótbolti Costa var hetja Portúgal og Klopp enn án sigurs Fótbolti Scheffler gaf ellefu metra pútt eftir frammíköll Golf „Úrslitin í leiknum algjörlega verðskulduð“ Sport Bríet Fjóla Bjarnadóttir: „Ég varð að klára þetta með þrennu “ Íslenski boltinn Hvar er orkan sem sást á Instagram? „Þetta er flatt“ Fótbolti Fleiri fréttir Guðjón Valur hafði betur gegn Arnóri Baldur Fritz markahæstur í sigri Kristianstad Haukur náði að hefna sín á Reyni Þór Stórbrotin varsla Grétars tryggði Haukum montréttinn: „Endar alltaf í svona vitleysu“ „Ég verð augljóslega að taka þetta tap alfarið á mig“ „Við erum Haukar og við horfum alltaf bara á toppinn“ Uppgjörið: FH - Haukar 34-35 | Haukar á toppnum og Hafnarfjörður er rauður Sigurður Dan skellti í lás og Stjarnan valtaði yfir Fram Lygilegt sigurmark HK í Vestmannaeyjum Dregið í bikarnum: Meistararnir fá gesti úr Garðabæ „Meira en tvö stig undir“ Garðar Ingi með þrjú mörk og Ómar og Gísli flugi áfram Reynir Þór hafði betur gegn Hauki í framlengdum leik Einar verulega ósáttur: „Mér finnst þetta bara galin ummæli“ Jóhanna um landsliðið: „Auðvitað er það svekkjandi“ Reynir vann Íslendingana sem tapa nánast aldrei Haukar - Valur 28-24 | Stórleikur Jóhönnu og Haukar með fullt hús stiga 33 mörk í tveimur leikjum: Mætti á æfingar og leiki með pabba ÍR vann öruggan sigur og ÍBV tók Selfoss Fram og Stjarnan unnu bæði Þorsteinn Leó frá í 8-12 vikur Stórsigur hjá Magdeburg og svekkjandi jafntefli í Danmörku ÍBV beið eftir betra veðri og sótti sigur Reynir Þór og félagar töpuðu með einu marki í mikilli dramatík Í skýjunum með dönsku nýlenduna í Þorpinu „Erum að spila fyrir allt Þórs samfélagið“ „Þetta móment á þessum stað á móti KA fyrir mitt félag að sjá fögnuðinn og upplifa hann var bara æðislegt“ Haukar á toppinn og jafntefli á Selfossi Valur bætti vörnina úr síðasta leik Elín Rósa og Díana Dögg unnu stórsigur Sjá meira
„Þetta móment á þessum stað á móti KA fyrir mitt félag að sjá fögnuðinn og upplifa hann var bara æðislegt“