Skoðun

Látum ekki hræða okkur

Daníel E. Arnarsson skrifar

„Andaðu með nefinu” var vanalega setningin sem ég fékk að heyra þegar ég tjáði mig um útlendingamál á sínum tíma. Nú langar mig að segja „spegill“ við þetta sama fólk, sem keppist við gera málaflokkinn tortryggilegan, tala um að hér sé ófremdarástand og allt á niðurleið – út af þessum útlendingum. Þess háttar málflutningur mun koma til með að auka útlendingaandúð og rasisma.

Eins óþolandi afmanneskjuvæðandi og það er að tala um tölur, peninga og annað þegar kemur að fólki þá skulum við samt ræða þetta - fyrst þið hafið fært þetta á þennan stað. Tökum umræðuna sem svo mörg eru að kalla á eftir.

Íslenska ríkið ákvað að veita fólki frá Venesúela sjálfkrafa viðbótarvernd. Sömu stjórnmálamenn og lýsa nú yfir „ófremdarástandi“. Þetta var ákvörðun þeirra.

Að sjálfsögðu hefur þessi ákvörðun leitt af sér aukningu umsókna fólks frá Venesúela – og því ber að fagna. Skv. gögnum frá félagsmálaráðuneytinu síðan í maí 2023 þá sýna þau að atvinnuþátttaka þeirra er meiri en Íslendinga.

Samtök atvinnulífsins hafa einmitt sagt að við þurfum fleira fólk til þess að halda innviðum gangandi og byggja þá upp. Þessir sömu innviðir og sumt stjórnmálafólk vill segja að séu „í molum“.

Er fólkið frá Venesúela mögulega að halda þeim gangandi?

Íslenska ríkið ákvað líka að taka á móti flóttafólki frá Úkraínu. Að sjálfsögðu. Það þarf ekki að rökstyðja það að neinu leyti hvers vegna sú ákvörðun var tekin. Við eigum að aðstoða stríðshrjáð lönd. Er þetta fólkið sem er að sliga okkur? Eru þessar manneskjur vandamálið? Þýddi úkraínski fáninn sem þið settuð upp á Facebook ekki neitt?

Ef íslenska ríkið tekur ákvörðun um að taka á móti fólki á fjöldaflótta þá þarf að vera plan, auðvitað. Það þarf að gera vel og af virðingu. Vandamál innviða á Íslandi er mun eldri og víðtækari heldur en svo að það sé hægt að kenna þessu „ófremdarástandi“ í útlendingamálum um.

Það er hrollvekjandi að horfa upp á stjórnmálafólk á Íslandi færa umræðuna á þennan stað, hræða fólk og nota til þess tölur sem eru samhengislausar.

Ef við tökum fjöldaflóttafólkið (sem ríkið bauð hingað og tók ákvörðun um að þeim yrði boðið) til hliðar við opinberar tölur þá fáum við eftirfarandi skv. vef Útlendingastofnunar:

2021: 875 umsóknir.

2022: 964 umsóknir

2023(jan-nóv): 892 umsóknir

Hvar er ófremdarástandið? Af hverju er verið að hræða okkur svona?

Mér finnst lítilmannlegt að gera svo lítið úr lífi manneskja að þau eru ekkert annað en vandamál og baggi á innviðum.

Innviðauppbygging á Íslandi er miklu flóknara fyrirbrigði heldur en að kenna litlum hópi samfélagsins um. Við buðum hingað fólki í neyð og núna látum við eins og þau séu stórvandamál? Þetta elur á rasisma og fordómum, með tilheyrandi samfélagslegum vandamálum í framtíðinni.

Höfundur er fyrrverandi varaþingmaður Vinstri grænna.




Skoðun

Skoðun

21 blár

Jón Pétur Zimsen skrifar

Sjá meira


×