Verðskuldað fyrir vonarstjörnuna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. febrúar 2024 13:45 Tómas Valur Þrastarson í leik með Þórsliðinu í vetur. Vísir/Bára Tómas Valur Þrastarson er búinn að spila sig inn í íslenska A-landsliðið með flottri frammistöðu sinni með Þórsurum í Subway deild karla í körfubolta. „
Hann er valinn í landsliðið í fyrsta skiptið,“ sagði Stefán Árni Pálsson, umsjónarmaður Subway Körfuboltakvölds. „Það er bara flott og verðskuldað,“ sagði Helgi Már Magnússon, sérfræðingur Körfuboltakvölds. „23 stig í þessum leik á móti Blikum og hann getur allt þessi strákur,“ sagði Stefán Árni. „Vonandi nýtir hann þessar æfingar vel og sýnir landsliðsþjálfaranum hvað í honum býr innan hópsins,“ sagði Helgi. Klippa: Körfuboltakvöld: Tómas Valur valinn í landsliðið „Hvað gerir það fyrir ungan dreng að vera valinn í landsliðið og fá að æfa með íslenska landsliðið,“ spurði Stefán. „Það er bara risastórt. Gaman að spreyta sig á móti þessum bestu og máta sig við þá. Hvar stend ég? Talandi ekki um ef hann kemst í liðið, fá að upplifa það að heyra þjóðsönginn og fá gæsahúð. Vera tilbúinn á bekknum að koma inn á völlinn og nýta þær mínútur sem hann fær,“ sagði Helgi. „Þetta er risastór fyrir hann og mér finnst hann vera búinn að vera að vaxa í allan vetur,“ sagði Helgi. „Hann er búinn að vera að máta sig við bestu leikmenn deildarinnar, erlenda atvinnumenn, þar sem hann er síður en svo að lúta í lægra haldi. Þetta er klárlega verðskuldað,“ sagði Sævar Sævarsson, sérfræðingur Körfuboltakvölds. „Hann fer inn í þetta auðmjúkur og stoltur af því að vera valinn í landsliðið. Á sama tíma: Hey, ég er mættur hingað til að gera hluti. Ég er vonarstjarna Íslands. Hann á svolítið að taka við keflinu,“ sagði Sævar. Það má horfa á umfjöllunina hér fyrir ofan.
Subway-deild karla Þór Þorlákshöfn Mest lesið „Hún reif í mig og hraunaði yfir mig, á Marilegan hátt“ Sport Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Handbolti Ósætti við úrelta löggjöf: „Sennilega eina þjóðin eftir í heiminum“ Sport „Vil miklu frekar eiga feril í MMA heldur en að vinna skrifstofustarf“ Sport Tyson segist ekki berjast vegna peninganna Sport Tekur með sér lifrarpylsu, grjónagraut og sviðasultu í bakgarðshlaupið Sport Óttast um öryggi fjölskyldunnar og neyðist til að flytja Sport Var kennari og þjálfaði karlalið þegar hann stýrði kvennalandsliðinu Fótbolti Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Handbolti Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira