Ekki búin að ákveða hvort framlengja eigi ákvæði um fjöldaflótta Lovísa Arnardóttir skrifar 15. febrúar 2024 06:45 Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra hefur enn ekki tekið ákvörðun um það hvort það eigi að framlengja gildistíma ákvæðis útlendingalaga vernd Úkraínumanna vegna fjöldaflótta frá Rússlandi. Vísir/Arnar Guðrún Hafsteinsdóttir, dómsmálaráðherra, hefur ekki tekið ákvörðun um það hvort framlengja eigi gildistíma 44. greinar laga um útlendinga um sameiginlega vernd Úkraínumanna vegna fjöldaflótta þeirra í kjölfar innrásar í Úkraínu.
Ákvörðunin verður tekin „á næstunni“ samkvæmt svari frá ráðuneyti hennar. Um fjögur þúsund manns hafa fengið mannúðarleyfi á Íslandi á grundvelli þessa ákvæðis. Úkraínumönnum var upphaflega veitt þessi vernd árið 2022 en sú vernd var svo framlengd þann 1. febrúar í fyrra. Gildistími hennar er til 4. mars á þessu ári. Ákvörðunin var upprunalega tekin í samráði við Evrópusambandið og framlengd í fyrra í samráði við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna. Tilkynnt var um framlenginguna í fyrra um mánuði áður en hún tók gildi. „Líkt og í fyrra verður sú ákvörðun tekin að höfðu samráði innanlands sem utan og birt á heimasíðu ráðuneytisins,“ segir Gunnlaugur Geirsson teymisstjóri útlendingamála í svari frá ráðuneytinu um málið. Um fjögur þúsund manns Árið 2022 fengu 2.316 frá Úkraínu mannúðarleyfi á Íslandi á grundvelli fjöldaflótta eða viðbótarverndar samkvæmt tölfræði Útlendingastofnunar. Frá janúar til nóvember í fyrra fengu 1.453 mannúðarleyfi vegna fjöldaflótta frá Úkraínu. Samanlagt eru það 3.769 einstaklingar. Ekki eru aðgengileg gögn á vef Útlendingastofnunar fyrir desember í fyrra eða janúar á þessu ári en ef fjöldinn er svipaður og fyrri mánuði, um hundrað manns, má gera ráð fyrir að heildarfjöldi sé tæplega fjögur þúsund manns sem hefur fengið þessa vernd frá því að 44. ákvæði laganna var virkjað. Umsókn verður þá tekin til meðferðar Verði ákvæðið ekki virkjað aftur munu þessir fjögur þúsund einstaklingar þurfa að láta Útlendingastofnun vita hvort að umsókn þeirra um alþjóðlega vernd, sem hefur verið sett til hliðar vegna fjöldaflóttaverndarinnar, eigi að vera tekin fyrir til efnislegrar meðferðar. Í 44. grein útlendingalaganna segir að þegar heimildin fellur niður, eða þegar liðin eru þrjú ár frá því að einstaklingur fékk slíka vernd fyrst, eiga yfirvöld að tilkynna umsækjanda að umsókn hans um alþjóðlega vernd verði aðeins tekin til meðferðar láti hann í ljós ótvíræða ósk um það innan tiltekins frests. Samkvæmt 44. grein útlendingalaga má endurnýja eða framlengja leyfið í allt að þrjú ár frá því að umsækjandi fékk það fyrst. Eftir það má veita fólki dvalarleyfi vegna alþjóðlegrar verndar, mannúðarsjónarmiða eða mansals en kveðið er á um það í 74. grein útlendingalaganna. Að liðnu einu ári með slíkt leyfi er heimilt að gefa út ótímabundið dvalarleyfi enda séu skilyrðin fyrir því að halda leyfinu enn fyrir hendi og skilyrðum að öðru leyti fullnægt, samanber það sem kemur fram í 58. ákvæði laganna sem fjallar um ótímabundið dvalarleyfi. Framlengja en þrengja skilyrði Evrópusambandsríkin hafa framlengt þessa fjöldaflóttavernd fyrir Úkraínumenn þar til á næsta ári en í Bretlandi, sem er utan sambandsins, var verndin upprunalega veitt til þriggja ára og rennur því út á næsta ári. Í Noregi, sem einnig er utan Evrópusambandsins, geta Úkraínumenn einnig fengið þessa sömu vernd en í janúar á þessu ári var tilkynnt, vegna mikils fjölda sem þangað hefur leitað, að Úkraínumenn með vernd eða tvöfalt ríkisfang í ríki sem Noregur metur öruggt fengju ekki vernd. Auk þess var tilkynnt að stuðningur við Úkraínumenn sem eru komnir í eigið húsnæði yrði minnkaður og að ferðir á milli Úkraínu og Noregs yrðu takmarkaðar. Þá var einnig tilkynnt að norsk yfirvöld myndu ekki lengur greiða fyrir komu og veru gæludýra í flóttamannamiðstöðvum sínum eða móttökumiðstöðinni. Tilkynnt var um þessar breytingar í lok janúar og taka þær gildi i dag, 15. febrúar.
Innrás Rússa í Úkraínu Flóttafólk á Íslandi Flóttamenn Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Tengdar fréttir Umsóknir um alþjóðlega vernd aldrei verið fleiri Umsóknir um alþjóðlega vernd á Íslandi árið 2022 voru 4.518 talsins en árið 2021 voru þær 875. Því er um að ræða rúma fimmföldum á umsóknum. Rúmur helmingur umsókna kom frá fólki á flótta frá Úkraínu í kjölfar innrás Rússa í landið. 7. febrúar 2023 10:05 Opna dyrnar fyrir flóttafólki frá Úkraínu Dómsmálaráðherra hefur ákveðið að virkja tiltekna grein Útlendingalaganna sem opnar á móttöku flóttafólks frá Úkraínu án sérstakra ferla. Forsætisráðherra segir um tímabundið leyfi að ræða en aðstæður í Evrópu séu einstakar um þessar mundir. 4. mars 2022 14:42 Umfangsmiklar loftárásir á borgir Úkraínu í morgunsárið Sprengingar hafa heyrst í Kænugarði í morgun eftir að Rússar gerðu umfangsmiklar loftárásir á höfuðborgina og aðrar borgir í Úkraínu. 7. febrúar 2024 06:52 Fékk þrjátíu mínútna sögukennslu í tveggja tíma viðtali Fyrstu þrjátíu mínútur tveggja klukkustunda langs viðtals sjónvarpsmannsins Tucker Carlson við Vladimir Pútín Rússlandsforseta fóru í yfirferð forsetans yfir sögu Rússlands, frá 9. öld og fram til valdatíma Leníns. 9. febrúar 2024 06:44 Heimur haturs, átaka og hergagnaframleiðslu Það horfir ekki friðvænlega í heiminum þessa dagana. Úkraínustríðið heldur áfram og hefur nú staðið yfir í hér um bil 2 ár. Átök eru á milli Ísraelshers og Hamas eftir árás hins síðarnefnda á Ísrael í október á 2023. Hútar í Jemen sem styðja Hamas ráðast á skip sem fara um Rauðahafið og þeir telja tengjast Ísrael eða bandamönnum Ísrael. 22. janúar 2024 10:00 Sökktu enn einu herskipinu með drónum Leyniþjónusta úkraínska hersins (GUR) birti í morgun myndband af sjálfsprengidrónaárás á rússneska herskipið Sesar Kúnikov. Skipið virðist hafa sokkið eftir árásina en þetta er fjórða skipið af þessari gerð sem Úkraínumenn hafa sökkt eða grandað. 14. febrúar 2024 09:56 Mest lesið Hæstiréttur Brasilíu hafnar kröfu Sverris Þórs Innlent Sánuferðir hafi svipuð áhrif á hjartað og líkamsrækt Innlent Níu drepnir í drónaárás á rútu Erlent „Það eru krakkar þarna núna sem eru bara í lífshættu” Innlent Svalt þokuloft ekki langt undan Innlent Tugir látnir eftir hvirfilbyl í Bandaríkjunum Erlent Ók fullur á nokkra kyrrstæða bíla Innlent Segir ríkið bera ábyrgð í máli mannsins á Hverfisgötu Innlent Árásirnar sagðar þær umfangsmestu síðan viðræðurnar fóru fyrir bí Erlent Styður tillögur að róttækum breytingum á byggingareftirliti Innlent Fleiri fréttir „Það eru krakkar þarna núna sem eru bara í lífshættu” Styður tillögur að róttækum breytingum á byggingareftirliti Róttækar breytingar á byggingareftirliti og í beinni frá Basel Blöndulón fyllist sögulega snemma og staðan góð í lónum Hæstiréttur Brasilíu hafnar kröfu Sverris Þórs Svalt þokuloft ekki langt undan Ók fullur á nokkra kyrrstæða bíla Sánuferðir hafi svipuð áhrif á hjartað og líkamsrækt Segir ríkið bera ábyrgð í máli mannsins á Hverfisgötu Björgunarmiðstöð byggð á Flúðum Eftirspurn á hlutabréfamarkaði mikil og blómstrandi gróður Sýknaðir af ákæru fyrir að brjótast inn í eigið hús Hvetja stjórnvöld í Ísrael til að breyta stefnu sinni tafarlaust Hefur áhyggjur af öryggi skólabarna í Laugardal Úlfar heldur fullum launum í heilt ár Keilusambandið sakað um djúpstæða spillingu Umferðarljós við gatnamót Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar óvirk Óheillaskref að áfengi sé selt á vellinum Mikið viðbragð Gæslunnar vegna veikinda langt úti á hafi Tugmilljóna gjaldþrot meðhöndlarans Bein útsending: Sterkari saman - Þjóðarsjúkrahús í 25 ár Afstaða fær 600 þúsund í verðlaun frá Reykjavíkurborg Dæmdur fyrir brot gegn fimmtán börnum í viðbót Sakar RÚV um óvandaðan fréttaflutning um fjármál borgarinnar Rafmagnslaust á Granda Nítján í haldi vegna fíkniefnainnflutnings um Keflavíkurflugvöll Mál Margeirs til Landsréttar Fjármálaráðherra ánægður með söluna á Íslandsbanka Hvetja kattaeigendur til að setja kettina í útivistarbann „Nú er verkstjórn tekin við sem gengur í málið“ Sjá meira
Umsóknir um alþjóðlega vernd aldrei verið fleiri Umsóknir um alþjóðlega vernd á Íslandi árið 2022 voru 4.518 talsins en árið 2021 voru þær 875. Því er um að ræða rúma fimmföldum á umsóknum. Rúmur helmingur umsókna kom frá fólki á flótta frá Úkraínu í kjölfar innrás Rússa í landið. 7. febrúar 2023 10:05
Opna dyrnar fyrir flóttafólki frá Úkraínu Dómsmálaráðherra hefur ákveðið að virkja tiltekna grein Útlendingalaganna sem opnar á móttöku flóttafólks frá Úkraínu án sérstakra ferla. Forsætisráðherra segir um tímabundið leyfi að ræða en aðstæður í Evrópu séu einstakar um þessar mundir. 4. mars 2022 14:42
Umfangsmiklar loftárásir á borgir Úkraínu í morgunsárið Sprengingar hafa heyrst í Kænugarði í morgun eftir að Rússar gerðu umfangsmiklar loftárásir á höfuðborgina og aðrar borgir í Úkraínu. 7. febrúar 2024 06:52
Fékk þrjátíu mínútna sögukennslu í tveggja tíma viðtali Fyrstu þrjátíu mínútur tveggja klukkustunda langs viðtals sjónvarpsmannsins Tucker Carlson við Vladimir Pútín Rússlandsforseta fóru í yfirferð forsetans yfir sögu Rússlands, frá 9. öld og fram til valdatíma Leníns. 9. febrúar 2024 06:44
Heimur haturs, átaka og hergagnaframleiðslu Það horfir ekki friðvænlega í heiminum þessa dagana. Úkraínustríðið heldur áfram og hefur nú staðið yfir í hér um bil 2 ár. Átök eru á milli Ísraelshers og Hamas eftir árás hins síðarnefnda á Ísrael í október á 2023. Hútar í Jemen sem styðja Hamas ráðast á skip sem fara um Rauðahafið og þeir telja tengjast Ísrael eða bandamönnum Ísrael. 22. janúar 2024 10:00
Sökktu enn einu herskipinu með drónum Leyniþjónusta úkraínska hersins (GUR) birti í morgun myndband af sjálfsprengidrónaárás á rússneska herskipið Sesar Kúnikov. Skipið virðist hafa sokkið eftir árásina en þetta er fjórða skipið af þessari gerð sem Úkraínumenn hafa sökkt eða grandað. 14. febrúar 2024 09:56