Eftirlýst í Rússlandi vegna sovéskra minnisvarða Samúel Karl Ólason skrifar 13. febrúar 2024 10:55 Kaja Kallas, forsætisráðherra Eistlands, og aðrir ráðherra Eystrasaltsríkja eru eftirlýstir í Rússlandi. AP/Omar Havana Yfirvöld í Rússlandi hafa gefið út handtökuskipun á Kaja Kallas, forsætisráðherra Eistlands. Taimar Peterkop, nokkurskonar ráðuneytisstjóri ríkisstjórnar Eistlands er einnig eftirlýstur í Rússlandi en talskona utanríkisráðuneytis Rússlands segir þau eftirlýst vegna niðurrifs á sovéskum minnisvörðum.
Þetta er í fyrsta sinn sem yfirvöld í Rússlandi gefa út handtökuskipun á erlendan þjóðarleiðtoga. Ráðherrar í Lettlandi eru einnig eftirlýstir í Rússlandi, vegna niðurrifs á minnisvörðum í Lettlandi. Ráða- og embættismenn víða í Austur-Evrópu eru nú eftirlýstir í Rússlandi. Kallas, sem hefur setið í embætti frá janúar 2021, hefur verið ötull stuðningsmaður Úkraínumanna í átökum þeirra við Rússa og hefur verið harðlega gagnrýnin á Vladimír Pútín, forseta Rússlands, og ríkisstjórn hans. Í frétt RIA fréttaveitunnar, sem er í eigu rússneska ríkisins, segir að Kallas hafi ítrekað gerst sek um „Rússafóbíu“ og að hún hafi sagt Rússland ógna öryggi Evrópuríkja. Þá er hún einnig sögð hafa lýst yfir vilja til að leiða Atlantshafsbandalagið til átaka við Rússland og viljað einangra Rússland. Hún er einnig sögð hafa stutt eyðileggingu sovéskra minnisvarða í Eistlandi og um að hafa kallað eftir því að Rússum verði meinaðar vegabréfsáritanir í Evrópu. Þá segir í grein RIA að hún hafi lýst yfir vilja sínum til að breyta stjórnarskrá Eistlands á þann veg að fólki sem reki rætur sínar til Rússlands og Belarús, verði meinað að taka þátt í kosningum. TASS fréttaveitan, sem er einnig í eigu rússneska ríkisins, segir dómsmálaráðherra, fjármálaráðherra og landbúnaðarráðherra Lettlands einnig eftirlýsta. Það er vegna niðurrifs á sovéskum minnisvörðum í Lettlandi. María Sakaróva, talskona utanríkisráðuneytis Rússlands, hefur lýst því yfir að Kallas og aðrir verði að svara fyrir brot sín gegn minningu þeirra sem hafi frelsað fólk frá fasisma og nasisma. Þá segir hún þessar handtökuskipanir eingöngu vera upphafið. Óttast innrás Rússa í framtíðinni Pútín hefur verið harðorður í garð Eystrasaltsríkjanna að undanförnu og hefur hann meðal annars sakað ríkisstjórnir þeirra um að reyna að reka fólk sem rekur rætur sínar til Rússlands úr landi. Í því tilfelli var hann líklega að vísa til nýrra reglna í Lettlandi um að rússneskir ríkisborgarar sem vilji búa eða vinna þar í landi þurfi að standast próf í lettnesku. Sjá einnig: Láta ekki ógna sér með stórri æfingu NATO Þá var tilkynnt í desember að um 1.200 rússneskum ríkisborgurum yrði vísað úr landi, því þau hefði ekki sótt um endurnýjun á dvalarleyfi fyrir frest í samræmi við nýju reglurnar. Ráðamenn við Eystrasalt hafa á undanförnum vikum lýst yfir áhyggjum varðandi það að þau ríki séu í hættu. Óttast þau möguleg átök við Rússa í framtíðinni og hafa gert samkomulag um að byggja upp varnir á landamærunum ríkjanna við Rússland og Belarús. Samkomulagið er sagt fela í sér byggingu sex hundruð neðanjarðarbyrgja og annarra varnarvirkja, auk þess sem ríkin myndu auka sameiginlega getu sína þegar kemur að stórskotaliði og auka varnir sínar að öðru leyti. Gabrielius Landsbergis, utanríkisráðherra Litháens, sagði nýverið við blaðamenn að Úkraínumenn væru að vinna tíma fyrir önnur ríki eins og Eystrasaltsríkin. Leyniþjónusta Eistlands gaf það út í morgun að yfirvöld í Rússlandi séu að undirbúa sig fyrir átök við Vesturlönd innan áratugar. Hægt væri að koma í veg fyrir það með hernaðaruppbyggingu. Reuters hefur eftir Kaupo Rosin, yfirmanni stofnunarinnar, að þetta byggi meðal annars á því að Rússar hafi ákveðið að tvöfalda fjölda hermanna á landamærum Rússlands við Finnland og Eystrasaltsríkin. Rosin segir ekki miklar líkur á árás frá Rússlandi til skamms tíma, vegna innrásarinnar í Úkraínu en ríki Evrópu þurfi að undirbúa sig fyrir langvarandi ögranir frá Rússlandi. Án undirbúnings og uppbyggingar aukist líkur á stríði í framtíðinni.
Eistland Lettland Litháen Rússland Vladimír Pútín Innrás Rússa í Úkraínu Sovétríkin Styttur og útilistaverk Tengdar fréttir Segir það munu taka Evrópu tíu ár að ná vopnum sínum Armin Papperger, forstjóri vopnaframleiðandans Rheinmetall, segir það munu taka Evrópu tíu ár að ná vopnum sínum á ný. Hann segir skotfærabirgðir álfunnar á þrotum. 13. febrúar 2024 09:06 Trump harðlega gagnrýndur fyrir boð til Rússa um að ráðast gegn Nató Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, segir bandalagið reiðubúið og viljugt til að vernda alla bandamenn sína, eftir að greint var frá því að Donald Trump hefði eggjað Rússa til að ráðast á þau ríki sem ekki legðu nægt fjármagn til varnarmála. 12. febrúar 2024 07:24 Herir Evrópu standa á brauðfótum eftir áratuga niðurskurð Frá því kalda stríðinu lauk á tíunda áratug síðustu aldar hafa ráðamenn í Evrópu varið sífellt minni fjármunum til varnarmála og hergagnaframleiðslu. Vopnabúr Evrópu eru svo gott sem tóm og getan til hergagnaframleiðslu lítil. 13. desember 2023 08:00 Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira
Segir það munu taka Evrópu tíu ár að ná vopnum sínum Armin Papperger, forstjóri vopnaframleiðandans Rheinmetall, segir það munu taka Evrópu tíu ár að ná vopnum sínum á ný. Hann segir skotfærabirgðir álfunnar á þrotum. 13. febrúar 2024 09:06
Trump harðlega gagnrýndur fyrir boð til Rússa um að ráðast gegn Nató Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, segir bandalagið reiðubúið og viljugt til að vernda alla bandamenn sína, eftir að greint var frá því að Donald Trump hefði eggjað Rússa til að ráðast á þau ríki sem ekki legðu nægt fjármagn til varnarmála. 12. febrúar 2024 07:24
Herir Evrópu standa á brauðfótum eftir áratuga niðurskurð Frá því kalda stríðinu lauk á tíunda áratug síðustu aldar hafa ráðamenn í Evrópu varið sífellt minni fjármunum til varnarmála og hergagnaframleiðslu. Vopnabúr Evrópu eru svo gott sem tóm og getan til hergagnaframleiðslu lítil. 13. desember 2023 08:00