Innflæði í ríkisbréf knúði Seðlabankann í nærri tíu milljarða gjaldeyriskaup
![Gjaldeyriskaup Seðlabankans á markaði á föstudaginn voru þau fyrstu sem hann stendur að frá því um vorið 2022.](https://www.visir.is/i/A636717FBEE6A68FA089610A7A89496757526D44848E500CA49E42BE52FE7FEA_713x0.jpg)
Á fyrstu vikum ársins hafa erlendir fjárfestar bætt við stöðu sína í löngum ríkisbréfum fyrir að lágmarki vel á annan tug milljarða króna. Seðlabankinn réðst í umfangsmikil gjaldeyriskaup síðastliðinn föstudag, þau fyrstu í meira en tuttugu mánuði, til að mæta miklu fjármagnsinnflæði þegar erlendur sjóður keypti stóran hluta alls útboðs ríkisins á óverðtryggðum bréfum.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/723A7F99156A5A6E55F54999E7CF3E94363029157DB015BA00B7F92445C19407_308x200.jpg)
BlueBay keypti ríkisbréf fyrir 20 milljarða og sér Ísland verða „Sviss norðursins“
BlueBay Asset Management, eitt stærsta sérhæfða skuldabréfastýringarfélag Evrópu, telur að Ísland geti í framtíðinni orðið þekkt sem „Sviss norðursins“. Þetta kemur fram í fréttabréfi sem Mark Dowding, yfirfjárfestingastjóri BlueBay, sendi á viðskiptavini félagsins í síðustu viku og Innherji hefur undir höndum.
![](https://www.visir.is/i/723A7F99156A5A6E55F54999E7CF3E94363029157DB015BA00B7F92445C19407_308x200.jpg)
Kaup erlendra sjóða á ríkisbréfum jukust hröðum skrefum undir lok ársins
Erlendir fjárfestar héldu áfram að bæta við stöðu sína í íslenskum ríkisskuldabréfum á síðasta mánuði ársins 2023 eftir að hafa sýnt þeim lítinn áhuga um nokkurt skeið þar á undan. Hlutfallsleg eign þeirra á útistandandi ríkisbréfum jókst þannig um meira en helming á fjórða ársfjórðungi samhliða því að gengi krónunnar hafði gefið nokkuð eftir.