Á sama tíma og algert frost er í viðræðum breiðfylkingar stéttarfélaga innan Alþýðusambandsins og Samtaka atvinnulífsins sitja fagfélögin innan ASÍ samningafundi með fulltrúum SA hjá ríkissáttasemjara. Hann sá ekki flöt á því að boða breiðfylkinguna og SA til fundar í dag en þessir aðilar hafa ekki fundað eftir árangurslausan fund á fimmtudag.

Kristján Þórður Snæbjarnarson sem fer fyrir fagfélögunum segir hins vegar að fundum verði haldið áfram á meðan einhver gangur væri í viðræðunum. Samningar á almenna vinnumarkaðnum renna út á fimmtudag og þar með friðarskyldan.

Flugumferðarstjórar hafa einnig fundað með viðsemjendum sínum hjá ríkissáttasemjara undanfarna daga. Arnar Hjálmsson formaður félags þeirra sagði í hádegisfréttum Bylgjunnar að viðræðurnar „potuðust í rétta átt“ og á meðan væri ekki ástæða til að boða til aðgerða. Í desember varð hins vegar mikil röskun á bæði millilandaflugi og innanlandsflugi vegna tveggja daga aðgerða flugumferðarstjóra. Þeir hættu síðan við aðrar tveggja daga aðgerðir dagana 18. og 20. desember vegna hamfaranna í Grindavík.
Þá er samflot stéttarfélaga fólks í opinberri þjónustu, BHM, BSRB og KÍ að hefja viðræður við ríki og sveitarfélög, en þeirra samningar renna ekki út fyrr en 31. mars.

„Það er alla vega samhljómur í okkar baklandi um að meginverkefnið sé að stemma stigu við vöxtum og verðbólgu. Þannig að það er gott að það er samtakamáttur í því. Svo eru auðvitað ýmis sérverkefni sem við verðum að horfa til ef það er verið að horfa til langtíma kjarasamnings,“ segir Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB.
Opinberu félögin í samflotinu væru þó ekki tilbúin til að semja til fimm ára eins og Samtök atvinnulífsins hefðu óskað eftir í viðræðum við breiðfylkinguna.
„Það er verið að horfa til þess að við gerum langtíma kjarasamning til að tryggja stöðugleika í þeim efnum. Það séu skýr skilaboð út á markaðinn. En ég get ekki sagt að nokkur sé að horfa til fimm ára samnings. Frekar til þriggja ára,“ segir Sonja Ýr.
Það væri samhljómur með kröfum opinberu félaganna og breiðfylkingarinnar þar sem stórir hópa innan BSRB væru á lægstu laununum upp að meðaltekjum. Aðilar hefðu því verið samstíga í kröfum gagnvart stjórnvöldum um hækkun barna- og vaxtabóta og svo framvegis. Enda hafi framlög til tilfærslukerfanna staðið í stað í mörg ár.
„Þannig að auðvitað þarf það að breytast. Það þarf að koma þeim raunverulega þannig að þau þjóni markmiðum sínum en líka tryggja að þau séu að þróast í takt við launin. Þar til viðbótar höfum við lagt ríka áherslu á endurmat á virði kvennastarfa og brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla,“ segir Sonja Ýr Þorbergsdóttir.