Hlutabréfasjóðir með mikið undir í Alvotech í aðdraganda ákvörðunar FDA
![Fjárfestar bíða flestir í ofvæni eftir niðurstöðu úttektar FDA á framleiðsluaðstöðu Alvotech enda er ljóst er að hún mun ráða miklu um framhaldið fyrir verðmætasta félagið í Kauphöllinni með markaðsvirði upp á 490 milljarða.](https://www.visir.is/i/51D6BFD2E2966C4F1A89676B05693BCF3D6A05BC39BF2CAE316C2419296B9B49_713x0.jpg)
Mikill meirihluti hlutabréfasjóða landsins, sem eru að stórum hluta fjármagnaðir af almenningi, er með hlutabréfaeign í Alvotech sem annaðhvort sína stærstu eða næstu stærstu eign núna þegar örfáar vikur eru í að niðurstaða fæst um hvort félagið fái samþykkt markaðsleyfi fyrir sitt helsta lyf í Bandaríkjunum. Hlutabréfaverð líftæknilyfjafyrirtækisins hefur rokið upp á síðustu vikum, meðal annars byggt á væntingum um að Alvotech muni loksins fá grænt ljóst frá Lyfjaeftirliti Bandaríkjanna.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/C0E62B99F808BFA1043C9C990F879029D29007544FD61E15EA68BEF64CBFE932_308x200.jpg)
Lyfjarisar keppast um að kaupa líftæknifyrirtæki
Stærstu lyfjafyrirtæki í heimi keppast um að kaupa líftæknifyrirtæki til að efla framleiðslu sína. Stjórnendur lyfjaframleiðenda vilja hafa hraða hendur því einkaréttur á allt að 170 lyfjum mun falla úr gildi við upphaf næsta áratugar sem standa undir næstum 400 milljarða Bandaríkjadala í tekjum fyrir stærstu fyrirtækin.
![](https://www.visir.is/i/17C9645581067B38B949E47045955594A877E944394CE8C3B17CB7F89407B4CA_308x200.jpg)
Tilboð JBT kom hlutabréfamarkaðnum á flug
Hlutabréfamarkaðurinn, sem er góðri siglingu, þurfti afgerandi jákvæð skilaboð til að komast úr hjólförum sem hann var fastur í en umtalsverðar lækkanir höfðu einkennt gengisþróunina lengst af á árinu sem var að líða. Þau fékk hann með yfirtökutilboði frá JBT í Marel fyrir skemmstu og jákvæðum tóni í kjaraviðræðum. Frá þeim tíma hefur mikil stemning ríkt á markaðnum.
![](https://www.visir.is/i/F9CDD3DC6C84C20EB40D8C62AD585CA94ABE2C87532C7951F75A70F03DDEFD7B_308x200.jpg)
Sjóðstjórar í ólgusjó þegar þeim var reitt þungt högg við verðhrun Alvotech
Íslenskir hlutabréfasjóðir hafa orðið fyrir þungu höggi eftir að gengi Alvotech, sem þar til fyrir skemmstu var verðmætasta fyrirtækið á markaði, hefur fallið um 36 prósent á aðeins sjö viðskiptadögum. Sjóðir Akta, einkum vogunarsjóðir í stýringu félagsins, höfðu meðal annars byggt upp verulega stöðu á skömmum tíma sem nam vel yfir fimm milljörðum króna daginn áður en tilkynnt var um að FDA myndi ekki veita Alvotech markaðsleyfi í Bandaríkjunum fyrir sitt stærsta lyf að svo stöddu. Greining Innherja á umfangi innlendra fjárfesta og sjóða í hluthafahópi Alvotech leiðir meðal annars í ljós að skuldsetning að baki hlutabréfastöðum í félaginu virðist hafa verið fremur hófleg.