Reyndi að fá fjórtán ára stúlku með sér á hótelherbergi í Reykjanesbæ Jón Þór Stefánsson skrifar 20. desember 2023 13:08 Atburðarás í málinu átt sér að miklu leiti stað í Reykjanesbæ. Vísir/Vilhelm Karlmaður um fertugt hlaut á dögunum átta mánaða fangelsisdóm, skilorðsbundin til tveggja ára, í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að tæla fjórtán ára stúlku og peningafals árið 2021. Maðurinn var sýknaður af kröfu ákæruvaldsins sem var á þá leið að maðurinn yrði dæmdur fyrir tilraun til nauðgunar á stúlkunni.
Fyrir liggur að maðurinn og stúlkan kynntust á samfélagsmiðlinum Snapchat, en í ákæru var honum gefið að sök að setja sig í samband við hana á miðlinum og mæla sér mót við hana í Reykjanesbæ, með það að markmiði að hafa við hana samræði eða önnur kynferðismök. Fram kemur að hann hafi tekið sér far frá Reykjavík til Reykjanesbæjar og leigt hótelherbergi að því tilefni. Maðurinn var einnig ákærður fyrir peningafals, en þegar hann var handtekinn vegna hins málsins fundust í tösku hans þrír falsaðir 5000 króna seðlar, allir með sama raðnúmeri. Fram kemur að einn seðlanna hafi verið klipptur út, en hinir tveir enn á hvítu blaði. Kallaði hana pínulitla og saklausa Í dómnum eru Snapchat-samskipti mannsins og stúlkunnar reifuð. Þar kallar hann hana meðal annars pínulitla, saklausa og algjört krútt. Þá sagist hann einnig vera graður og talar um að þau eigi að hittast og talar á óljósan hátt um athafnir sem þau ættu að framkvæma saman. Þá virðist hann hafa reynt að sannfæra hana um að senda sér kynferðislegar myndir af sér. Dómurinn féll í Héraðsdómi ReykjavíkurVísir/Vilhelm Fram kemur að stúlkan hafi sagt manninum að hún væri í níunda bekk. Maðurinn vildi meina að hann hafi haldið að hún væri fimmtán ára, að hann héldi að fólk í níunda bekk væri svo gamalt, en dómurinn féllst ekki á þá skýringu hans. Það sé almenn vitneskja að níundu blekkingar séu þrettán til fjórtán ára. Hótaði að stinga drengi í höfuðkúpuna Stúlkan hafi verið með vinum sínum, drengjum, þegar maðurinn kom í Reykjanesbæ frá Reykjavík til að hitta hana. Drengirnir sögðust hafa gengið á hann og spurt hvað hann væri að hugsa, að vera í samskiptum við fjórtán ára stúlku. Að sögn drengjanna var viðbragð mannsins að taka upp hníf, sem er talinn í raun hafa verið skæri, og hóta drengjunum. Bæði er haft eftir honum að hann hafi ætlað að veita þeim heilaskaða og stinga þá í höfuðkúpuna. Hann hafi síðan húkkað sér far og komið sér á brott. Drengirnir hafi þá haft samband við lögreglu, og maðurinn var í kjölfarið handtekinn og peningaseðlarnir fundist á honum, sem og lykill að hótelherberginu. Ekki tilraun til nauðgunar Héraðsdómur taldi sannað að maðurinn hafi ætlað sér að hitta stúlkuna og fara með henni á hótelherbergi, og það í kynferðislegum tilgangi. Dómurinn segir hægt að ráða af gögnum málsins að ætlun hans hafi verið að ná fram samræði eða öðrum kynferðismökum við stúlkuna. Hins vegar féllst dómurinn ekki á að um tilraun til nauðgunar væri að ræða. Að mati dómsins voru undirbúningsathafnir hans of fjarlægar háttsemi sem flokka mætti sem nauðgun. Líkt og áður segir hlaut maðurinn átta mánaða skilorðsbundin dóm. Honum er einnig gert að greiða stúlkunni 500 þúsund krónur í miskabætur og stærstan hluta málskostnaðar málsins. Þess má geta að árið 2016 staðfesti Hæstiréttur dóm Héraðsdóms Norðurlands eystra þess efnis að maður sem hótaði í Snapchat skilaboðum að dreifa nektarmyndum af brotaþola, ef hann hefði ekki kynmök við sig, væri tilraun til nauðgunar. Undanfarið hefur verið greint frá tveimur málum þar sem menn eru sakfelldir fyrir samræði við börn, en ekki nauðgun. Annars vegar var fyrrverandi starfsmaður grunnskóla í bæjarfélagi á Norðurlandi vestra dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir að hafa ítrekað haft samræði við stúlku í níunda bekk skólans. Hins vegar var maður dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn tveimur stúlkum. Önnur var þrettán ára sem hann kynntist á Snapchat og taldi dómurinn sannað að þau hefðu haft samræði, en leit ekki svo á að um nauðgun væri að ræða. Hann var því sýknaður af þeirri kröfu.
Dómsmál Kynferðisofbeldi Ofbeldi gegn börnum Reykjanesbær Tengdar fréttir Starfsmaður grunnskóla dæmdur fyrir ítrekað samræði við stúlku Fyrrverandi starfsmaður grunnskóla í bæjarfélagi á Norðurlandi vestra hefur verið dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir að hafa á nokkurra mánaða tímabili fyrir um tveimur árum ítrekað haft samræði við stúlku í níunda bekk skólans. Hann var sýknaður af ákæru fyrir nauðgun. 13. desember 2023 16:43 Tveggja ára fangelsi fyrir samræði við þrettán ára stúlku 23 ára karlmaður og hælisleitandi sem búið hefur á Íslandi í þrjú ár hefur verið dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn tveimur stúlkum. Önnur var þrettán ára sem hann kynntist á Snapchat en hin var dóttir kærustu hans og glímdi við þroskaskerðingu. 6. desember 2023 17:56 Mest lesið Setja lög á verkfall flugvirkja Innlent Verkfall flugvirkja hafið Innlent Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Innlent Fella niður 26 flugferðir Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Innlent Segir stóra ákvörðun framundan Erlent Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Innlent Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Innlent Hvannadalshnjúkur lækkar Innlent Fleiri fréttir Foreldrar geti nú stillt útlit og falið hvatningu í Læsi Ók allt of hratt og á móti umferð í eftirför lögreglu Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Setja lög á verkfall flugvirkja Verkfall flugvirkja hafið „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Hvannadalshnjúkur lækkar Líkamsárás í Breiðholti Fella niður 26 flugferðir Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur Lögreglan leitar að Arturas Flugfreyjur og flugmenn styðja flugvirkja Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Bein útsending: Kynna nýtt áhættumat fyrir Grindavík Barn stakk sig á sprautunál á skólalóðinni „Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ Gómaður með gríðarlegt magn af barnaklámi Nýtt áhættumat: Bjóða Grindvíkingum að kaupa húsin til baka Flestir félagar vilji frekari kjarabætur vegna forsendubrests Kristján hótar lögsókn verði bann að lögum Hefja athugun á fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar Stefnir í aflýsingar á öllu morgunflugi frá Keflavík og Reykjavík Munu ekki samþykkja frekari hækkun launa Árleg framlög jukust um 286 milljónir en Sinfónían aftur rekin með tapi Segir ásakanir flugvirkja „furðulegar“ Neitar að tjá sig um hvort lög verði sett á verkfall Ekkert í afkomu fyrirtækja sem sýni virðingu fyrir kjarasamningum Þokast æ fjær loftslagsskuldbindingum Íslands Sjá meira
Starfsmaður grunnskóla dæmdur fyrir ítrekað samræði við stúlku Fyrrverandi starfsmaður grunnskóla í bæjarfélagi á Norðurlandi vestra hefur verið dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir að hafa á nokkurra mánaða tímabili fyrir um tveimur árum ítrekað haft samræði við stúlku í níunda bekk skólans. Hann var sýknaður af ákæru fyrir nauðgun. 13. desember 2023 16:43
Tveggja ára fangelsi fyrir samræði við þrettán ára stúlku 23 ára karlmaður og hælisleitandi sem búið hefur á Íslandi í þrjú ár hefur verið dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn tveimur stúlkum. Önnur var þrettán ára sem hann kynntist á Snapchat en hin var dóttir kærustu hans og glímdi við þroskaskerðingu. 6. desember 2023 17:56